
Hljómsveit Vilhelms Guðmundssonar 2003
Hljómsveitir voru starfandi í marga áratugi undir stjórn harmonikkuleikarans Vilhelms Guðmundssonar (Villa á Karlsá) og voru þær ýmis kallaðar Hljómsveit Villa á Karlsá, Hljómsveit Vilhelms Guðmundssonar eða Villi á Karlsá og félagar.
Vilhelm Jónatan Guðmundsson hafði leikið á dansleikjum á heimaslóðum í Svarfaðardalnum um árabil ýmis einn eða með danshljómsveitum og árið 1963 virðist hann í fyrsta sinn starfrækja hljómsveit í eigin nafni þegar sveit hans lék gömlu dansana fyrir gesti þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum – engar frekari upplýsingar er að finna um þessa sveit.
Vilhelm flutti til Reykjavíkur í kringum 1970 en nokkur ár liðu uns hann stofnaði hljómsveit syðra, árið 1978 er talað um Kombó Villa á Karlsá sem lék á dansleik Svarfdælinga fyrir sunnan og líklega starfaði sú sveit nokkuð samfleytt eftir það þó ekki færi mikið fyrir henni í auglýsingum dagblaðanna því sveitin lék mikið á samkomum átthagafélags Svarfdælinga í Reykjavík á árunum 1983 til 88 en einnig eitthvað á ölduhúsum höfuðborgarsvæðisins, oftast undir nafninu Hljómsveit Vilhelms Guðmundssonar. Enn kom sveitin við sögu árið 1996 (Villi Karls og félagar), 2002 og 2003 en síðustu árin sem hún starfaði var það mestmegnis innan Félags harmonikuunnenda í Reykjavík. Engar upplýsingar finnast um skipan sveita Vilhelms fyrr en árið 2003 en þá var hún skipuð þeim Þóri Magnússyni trommuleikara, Þorsteini R. Þorsteinssyni gítarleikara, Hreini Vihjálmssyni bassaleikara [?] og Vilhelmi sjálfum á harmonikku en Mattý Jóhanns (Matthildur Jóhannsdóttir) söng með sveitinni og hafði þá starfað með Vilhelm um tíma. Líklegt er að nokkur fjöldi tónlistarmanna hafi starfað í hljómsveitum Vilhelm í gegnum tíðina.














































