Hljómsveitakeppni var haldin innan Menntaskólans á Egilsstöðum haustið 1997 undir yfirskriftinni Rokk 5.
Sex hljómsveitir voru skráðar til leiks og var fyrirkomulag keppninnar með þeim hætti að hver sveit lék þrjú lög og þar af þurfti að minnsta kosti eitt þeirra að vera frumsamið. Sigurvegarar Rokk 5 voru hljómsveitin Kirkwood en Lebensraum hlaut titilinn athyglisverðasta sveitin. Sigursveitirnar fóru ekki hátt á landsvísu í kjölfarið en þess má geta að meðal tveggja tónlistarmanna sem hlutu aukaverðlaun voru tveir sem síðar áttu eftir að verða nokkuð þekkt nöfn – annars vegar Svanur Vilbergsson sem kjörinn var besti gítarleikari keppninnar og svo Magni Ásgeirsson sem hlaut nafnbótina besti söngvarinn.
Rokk 5 virðist hafa verið haldin aðeins í þetta eina sinn.














































