Honzby (1991)

Hljómsveitin Honzby var eins konar pönkrokksveit starfandi á Húsavík árið 1991 en meðlimir sveitarinnar voru ungir að árum, reyndar markar þessi sveit upphaf hljómsveitaferla þeirra en þeir eiga þó mis stóran tónlistarferil að baki sem inniheldur hljómsveitir á borð við Skálmöld, Innvortis og Ljótu hálfvitana svo fáein dæmi séu nefnd.

Meðlimir Honzby voru þeir Arngrímur Arnarson trommuleikari, Björgvin Sigurðsson gítarleikari, Brynjúlfur Sigurðsson bassaleikari og Snæbjörn Ragnarsson gítarleikari – ekki liggur fyrir hver eða hvort einhver söng með sveitinni.