Fyrri hluta ársins 1994 starfaði hljómsveit sem bar nafnið Hress en um var að ræða hliðarsveit Sniglabandsins, þ.e. Sniglabandið án Skúla Gautasonar.
Meðlimir þessarar sveitar voru því Björgvin Ploder, Einar Rúnarsson, Pálmi J. Sigurhjartarson og Friðþjófur Sigurðsson, sá síðast taldi var um þessar mundir að hætta í Sniglabandinu og munu einhverjir hafa leyst hann af á bassanum en Jón Ólafsson var einn þeirra, ekki liggja fyrir upplýsingar um aðra sem leystu Friðþjóf af hólmi.
Hress lék líklega mestmegnis eða eingöngu á höfuðborgarsvæðinu frá því í byrjun árs 1994 og fram á vorið en þá kom Skúli söngvari aftur inn og Sniglabandið tók við.














































