
Hvellir
Hljómsveitin Hvellir starfaði í gagnfræðiskólanum á Hvolsvelli líklega veturinn 1966-67 en sveitin mun þá hafa leikið á samkomu tengdri skólanum.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Reynir Daníel Gunnarsson gítarleikari, Stefán Ólafsson gítarleikari, Ísólfur Gylfi Pálmason trommuleikari og Helgi Bjarnason sem lék á melódiku.
Engar upplýsingar er að finna um starfstíma Hvella en líklega var hljómsveitin ekki langlíf.














































