Óskað er eftir upplýsingum um kór sem starfaði á Patreksfirði á árunum 1908 til 1913 undir nafninu Söngfélagið Harpa, einnig gæti verið um sama kór að ræða sem gekk undir nafninu Söngfélagið Fram.
Hermann Þórðarson skólastjóri á Patreksfirði mun hafa verið söngstjóri Hörpu en hann var jafnframt organisti og stjórnandi kirkjukórsins á staðnum, þeir Sigurður Magnússon læknir munu hafa verið aðal forvígismenn um stofnun þessa félag. Harpa mun hafa verið í söngferð um Dýrafjörð, Bíldudal og Ísafjörð um vorið 1913














































