Blandaður kór starfaði á Akureyri undir nafninu Söngfélagið Tíbrá um tveggja ára tímaskeið á árunum 1904 til 1906.
Þegar Sigurgeir Jónsson frá Stóru Völlum í Þingeyjasýslu flutti til Akureyrar stofnaði hann Tíbrá en hann átti síðar eftir að gegna veigamiklu hlutverki í tónlistarlífi bæjarins sem organisti, kórstjórnandi og tónlistarkennari. Söngfélagið Tíbrá þótti góður kór, hann skipuðu um fjörutíu manns og hélt hann nokkra tónleika í kirkjunni á Akureyri á því tveggja ára tímabili sem hann starfaði en ástæðan fyrir skammlífi hans má líklega rekja til skorts á æfingahúsnæði sem var af skornum skammti á Akureyri á þeim tíma.














































