
Stefán Þórisson
Sjö afmælisbörn úr tónlistargeiranum koma við sögu í dag:
Eva Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleikari á sextíu og eins árs afmæli í dag. Hún er af miklum tónlistarættum, nam fiðluleik hér heima á Íslandi áður en hún hélt til Belgíu, Sviss og Hollands til framhaldsnáms, hún menntaði sig einnig í Bandaríkjunum í tónsmíðum og hljómsveitastjórnun. Tvær plötur hafa komið út með fiðluleika Evu, 1995 og 1998 en einnig hefur hún leikið á plötum Pólýfónkórsins t.a.m. Eva bjó um tíma í Japan en hefur búið í Bandaríkjunum að mestu hin síðustu ár.
Guðrún (Ólöf) Gunnarsdóttir söng- og útvarpskona á stórafmæli en hún er sextug í dag. Guðrún hóf sinn söngferil með MK kvartettnum á menntakólaárunum fyrir og um miðjan níunda áratug síðustu aldar, og stuttu síðar með hljómsveitinni Svefngölsum sem gaf út plötu 1986. Fljótlega fór að bera á henni við ýmis söngverkefni og undankeppni Eurovision, síðar Landslagskeppnin og Sæluvikukeppnin urðu hennar vettvangur sem og gestasöngur á plötum annarra s.s. Geirmundar Valtýssonar o.fl. Guðrún hefur gefið út nokkrar sólóplötur og nokkrar einnig með Friðriki Ómari Hjörleifssyni, sungið með Snörunum og á fjölmörgum plötum annarra listamanna.
Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson gítarleikari og framkvæmdastjóri er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Hjörtur hefur leikið með fjölmörgum hljómsveitum bæði þekktum og óþekktum og má meðal annarra nefna sveitir eins og Spoon, Mír, Low/Mid/High.
Egill Sæbjörnsson mynd- og tónlistarmaður á stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Hann hefur gefið út nokkrar plötur en platan Tonk of the lawn frá árinu 2000 vakti mesta athygli, hún innihélt lagið I love you so sem varð nokkuð vinsælt. Egill hefur einnig komið fram undir aukasjálfunum Eagle og Muddy fog, og var í hljómsveitinni Síld, ást og ávextir á sínum uppvaxtarárum.
Bobby Harrison sem hér starfaði um árabil, átti afmæli á þessum degi en hann lést 2022. Bobby Harrison (fæddur 1939) gaf út nokkrar plötur meðan hann bjó hér og starfrækti nokkrar hljómsveitir, flestar í blúskantinum – þar má nefna sveitir eins og Pöbb-bandið Rockola, Black cat bone, ASIA og B.H. blues band en hann stóð einnig fyrir tónleikahaldi þar sem þekkt erlend bönd komu við sögu.
Harmonikkuleikarinn Stefán Þórisson (1930-2016) í Hólkoti átti afmæli á þessum degi. Stefán var kunnur harmonikkuleikari á árum áður og lék á dansleikjum víða um Þingeyjasýslur, þá var hann síðar virkur í samfélagi harmonikkuunnenda á Norðurlandi og var m.a. meðal stofnenda Harmóníkufélags Þingeyinga. Hann sendi frá sér eina harmonikkuplötu í samstarfi við Ásgeir Stefánsson.
Að síðustu má nefna Lárus Ingólfsson revíusöngvara og leikara (1905-81). Á tónlistarsviðinu var hann fyrst og síðast gaman- og vísnasöngvari, og vinsæll sem slíkur en hann var einnig menntaður leikmynda- og búningahönnuður. Þótt Lárus hafi fyrst og fremst verið leikari má heyra rödd hans á nokkrum plötum, bæði sem hafa að geyma leikrit og lög úr leikritum, mestmegni barnaleikritum eins og Dýrin í Hálsaskógi, Kardimommubænum o.þ.h.
Vissir þú að Katrína Mogensen söngkona Mammút hefur sungið lag með Morðingjunum á plötu?














































