
Jón Ólafsson
Fjögur afmælisbörn í tónlistargeiranum líta dagsins ljós að þessu sinni:
Jóhann Helgason er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Jóhann er einn okkar fremsti lagahöfundur og söngvari og á ógrynni laga sem allir þekkja, meðal þeirra má nefna Söknuður, Seinna meir, Take your time og Karen svo fáein dæmi séu nefnd. Jóhann hefur starfað með fjölmörgum hljómsveitum og dúettum, þar má nefna Þú og ég, Change, Magnús og Jóhann, Pal brothers, Póker, Ábót og Lummurnar.
Jón Ólafsson, oftast kenndur við Skífuna er sextíu og níu ára gamall. Tenging hans við íslenskt tónlistarlíf er fyrst og fremst í gegnum Skífuna sem hann stofnaði og starfrækti en áður hafði hann meðal annars rekið útgáfu- og umboðsfyrirtækin Demant hf., Hljómplötuútgáfuna og Júdas. Upphafið af þessu má hins vegar rekja til þess er hann var titlaður framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar Júbó árið 1970.
Einnig hefði Hilmar Kristjánsson gítarleikari Dáta átt afmæli á þessum degi en hann lést 1978. Hilmar (fæddur 1946) stofnaði Dáta 1965 en hætti ári síðar í sveitinni, hann lék þó á fyrstu plötunni sem hafði m.a. að geyma lagið Leyndarmál. Hann gerði tilraun til að endurreisa sveitina 1973 en sú útgáfa Dáta starfaði stutt.
Þá fagnar Árni (Gunnarsson) Jörgensen gítarleikari frá Siglufirði sjötíu og fjögurra ára afmæli á þessum degi. Árni Jörgensen starfaði með ýmsum kunnum hljómsveitum frá Siglufirði og hér mætti nefna sveitir eins og Storma, Fönix, Skuggasveina og Hrím.
Vissir þú að árið 1993 var til ballhljómsveit sem hét John Wayne?














































