Hljómsveit sem bar nafnið Ha starfaði við Héraðsskólann í Reykholti í Borgarfirði laust eftir miðjan áttunda áratug síðustu aldar, að öllum líkindum í kringum 1977.
Sigurður Matthíasson var söngvari hljómsveitarinnar Ha og einnig var Linda Björk Hreiðarsdóttir (síðar trommuleikari í Grýlunum) meðlimur hennar en ekki liggur fyrir á hvað hún spilaði í sveitinni.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um Ha.














































