Hafsteinn Ólafsson (1915-87)

Auglýsing með harmonikkutónleikum

Hafsteinn Ólafsson var meðal fremstu harmonikkuleikara landsins á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar og lét að sér kveða bæði í spilamennsku og félagsmálum harmonikkuleikara.

Hafsteinn fæddist í Reykjavík sumarið 1915 og bjó þar alla ævi, hann vann almenn störf en lengst starfaði hann hjá Mjólkursamsölunni við eftirlit. Hann hóf ungur að leika á harmonikku og lék mikið á dansleikjum á sínum yngri árum, bæði einn og í samstarfi með öðrum s.s. Ársæli Kjartanssyni, Ólafi Hólm o.fl. mest á höfuðborgarsvæðinu en einnig m.a. töluvert á Hreðavatni uppi í Borgarfirði líklega fram yfir 1960, þegar nikkan þurfti smám saman að víkja undan bítlagargi og bárujárnstónlist.

Sagan segir að hann hafi kynnst verðandi eiginkonu sinni með þeim hætti að hann hafi verið að leika á dansleik þegar hann sá hana og henti frá sér nikkunni til að bjóða henni í dans. Hafsteinn lék bæði á almennum dansleikjum en einnig í einkasamkvæmum auk þess sem hann lék í útvarpinu á sínum yngri árum enda þótti hann á sínum tíma einn færasti harmonikkuleikari landsins.

Hafsteinn Ólafsson

Hafsteinn var einnig ötull í félagsstarfi harmonikkuleikara, hann var meðal stofnenda Félags harmonikuleikara í Reykjavík haustið 1936 en það var fyrsti félagsskapur sinnar tegundar hérlendis, Hafsteinn var síðan kjörinn formaður félagsins og var þannig fyrstur manna til að gegna slíku hér á landi. Mörgum áratugum síðar þegar harmonikkuvakningin var sem mest á áttunda og fram á níunda áratuginn var Hafsteinn einnig virkur í Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík (F.H.U.R.) (st. 1977) og lék m.a. með hljómsveit félagsins.

Hafsteinn lést árið 1987 en hann hafði þá átt í erfiðum veikindum um árabil.