Afmælisbörn 12. október 2023

Páll Ísólfsson

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:

Páll Ísólfsson tónskáld og Dómorganisti hefði átt afmæli á þessum degi. Hann fæddist 1893 á Stokkseyri og nam þar fyrst orgelleik, sem og í Reykjavík en fór síðan til Þýskalands og síðar Frakklands til framhaldsnáms. Þegar heim var komið gerðist hann organisti fyrst hjá Fríkirkjunni en síðan í Dómkirkjunni, stjórnaði einnig Lúðrasveit Reykjavíkur og starfaði síðan við Ríkisútvarpið sem tónlistarstjóri. Hann stýrði einnig Tónlistarskólanum í Reykjavívk, sinnti félagsstörfum tónlistarmanna m.a. sem formaður Félags íslenskra organista, og samdi tónlist, m.a. Alþingiskantötu 1930 við hátíðarljóð Davíðs Stefánssonar sem margir segja vera fyrsta stóra íslenska tónverkið. Páll lést 1974.

Þá átti Valgerður Briem (Lárusdóttir) einnig afmæli á þessum degi en hún telst vera ein fyrst söngkvenna á Íslandi. Valgerður (1885-1924) nam söng í Danmörku og hélt fjölda einsöngstónleika hér heima fyrir fullu húsi en hún stofnaði einnig stúlknakórinn Gígjuna og kvennakór innan KFUK. Hún kenndi jafnframt sönglistina samhliða öðrum störfum.

Vissir þú að J.J. Soul band hlaut eitt sinn fyrstu verðlaun í alþjóðlegri sönglagakeppni í Bandaríkjunum?