
Haukur Guðlaugsson
Haukur Guðlaugsson vann mikið starf í þágu íslensks tónlistarlífs, sem hljóðfæraleikari, tónlistarkennari og kórstjórnandi en einnig sem söngmálastjóri þjóðkirkjunnar en þeirri stöðu gegndi hann í ríflega aldarfjórðung. Það var ekki fyrr en á seinni árum sem hann gaf sér tóm til að senda frá sér plötur með orgelleik sínum.
Haukur fæddist á Eyrarbakka vorið 1931 og hóf nám í píanóleik á barnsaldri og svo við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Árna Kristjánssyni. Hann var ungur farinn að koma fram á tónleikum samhliða námi sínu, þar sem hann lék bæði á píanó og harmóníum (orgel) en að fullnaðarprófi loknu hóf hann að kenna við tónlistarskólann á Siglufirði haustið 1951 aðeins tvítugur að aldri. Haukur bjó og starfaði um fimm ára skeið fyrir norðan og segja má að hann hafi rifið upp tónlistarlífið í síldarbænum en þar varð hann skólastjóri tónlistarskólans, organisti og kórstjórnandi við kirkjuna auk þess sem hann stjórnaði karlakórnum Vísi, mikið orð fór af þeim kór undir stjórn Hauks en hann var á þeim tíma einnig að semja tónlist sem kórinn gjarnan flutti á tónleikum.
Árið 1955 fór Haukur til Þýskalands þar sem hann var við orgelnám í fimm ár, hann lék þar eitthvað á tónleikum við góðan orðstír og t.a.m. lék hann í þýska ríkisútvarpinu en upptökur frá því voru síðar gefnar út. Þegar hann kom aftur heim til Íslands tók hann við stjórn Tónlistarskólans á Akranesi og þar átti hann eftir að búa næstu áratugina, samhliða því var hann organisti og kórstjóri kirkjukórsins á Akranesi og karlakórsins Svana og stjórnaði um tíma einnig drengjakór, þá kenndi hann jafnframt söng við barnaskólann og reif þannig með ýmsum hætti upp tónlistarlífið á Skaganum líkt og á Siglufirði nokkrum árum fyrr – meðal nemenda Hauks á Akranesi má nefna Úlrik Ólason og Karl J. Sighvatsson. Samhliða störfum sínum á Akranesi var Haukur duglegur að koma fram á tónleikum víða um land, lék einnig einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fór m.a.s. tvívegis til Þýskalands og Ítalíu þar sem hann lék á orgeltónleikum.

Haukur ásamt eiginkonu sinni 1960
Haukur var skólastjóri tónlistarskólans allt til 1975 utan þess að hann fór um nokkurra mánaða skeið suður til Ítalíu til framhaldsnáms í orgelleik en árið 1974 hlaut hann stöðu söngmálastjóra þjóðkirkjunnar sem var æði umfangsmikið starf og því varð hann að hætta kennslunni á Akranesi, hann átti þó eftir að stjórna kirkjukórnum og sinna organistastarfinu áfram allt til 1982 og reyndar var hann búsettur á Skaganum mun lengur, áður en hann svo fluttist á höfuðborgarsvæðið í kringum aldamót.
Sem söngmálastjóri kom Haukur að ýmsum tónlistartengdum verkefnum, hann stýrði t.a.m. tónskóla þjóðkirkjunnar en einnig var hans hlutverk að heimsækja kirkjukóra og organista til að leiðbeina þeim, standa að ýmis konar útgáfumálum m.a. með útgáfu nótna- og fræðsluefnis auk þess að standa fyrir öðru námskeiðahaldi og fræðslu. Starf Hauks var einnig fólgið í því að leika á tónleikum og stjórna t.a.m. Skálholtskórnum í einhver skipti og þegar hann hætti störfum sem söngmálastjóri árið 2001 fyrir aldurs sakir, þá orðinn sjötugur, var hann enn fullur af starfþreki og átti eftir að leika víðs vegar um landið á tónleikum bæði smærri og stærri langt fram á níræðis aldurinn, auk þess að halda námskeið á vegum kirkjumálasjóðs sem söngmálastjóraembættið heyrði nú undir – hann var því í raun söngmálastjóri mun lengur en til sjötugs.

Haukur Guðlaugsson
Haukur hafði stjórnað kirkjukór Akraness á tveimur útgefnum plötum sem og karlakórnum Svönum líka en einnig hefur hann leikið inn á plötur með t.a.m. Samkór Rangæinga, karlakórnum Fóstbræðrum, Kirkjukór Akureyrar o.fl. Árið 1994 kom út plata með þeim Hauki og Gunnari Kvaran sellóleikara með verkum eftir Johan Sebastian Bach en þeir Gunnar höfðu unnið heilmikið saman, líklega er önnur plata væntanleg með þeim félögum með nýlegri upptökum. Árið 2011 kom út í tilefni af 80 ára afmælis Hauks, tvöfalda platan Organ flóra: Haukur Guðlaugsson leikur á ýmis orgel á Íslandi og Hamborg, sú plata hefur að geyma upptökur frá ferli Hauks og þar má m.a. heyra upptökur frá þýska ríkisútvarpinu. Árið 2020 kom svo út eins konar framhald af plötunni, Organ flóra 2 sem inniheldur sams konar upptökur héðan og þaðan og frá ýmsum tímum en upptökurnar á plötunum tveimur ku vera frá tímabilinu 1958-2010.
Haukur sinnti margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum á starfsferli sínum, hann var t.d. í stjórn Félags íslenskra organleikara, formaður Tónlistarfélags Akraness, formaður minningarsjóðs um Karl J. Sighvatsson, formaður Kirkjukórasambands Íslands, formaður tónmenntasjóðs kirkjunnar og var í sálmabókanefnd, gegndi nefndarstörfum fyrir hönd Íslands í NOMUS – norrænu tónlistarsamstarfi og þannig mætti áfram telja. Hann var jafnframt heiðraður með ýmsum hætti fyrir störf sín að tónlistarmálum, hlaut riddarakross, Liljuna – viðurkenningu kirkjutónlistarfólks og heiðursútnefningu í Félagi íslenskra organleikara og Félagi íslenskra tónlistarmanna svo fátt eitt sé upp talið.
Haukur lést haustið 2024, á nítugasta og fjórða aldursári.














































