Afmælisbörn 2. febrúar 2024

Magnús Baldvinsson

Í dag er einn tónlistarmaður á lista yfir afmælisbörn dagsins:

Magnús Baldvinsson söngvari er sextíu og sex ára gamall á þessum degi. Hann hefur mestmegnis alið manninn erlendis, einkum í Evrópu hin síðari ár en áður í Bandaríkjunum þar sem hann hafði verið við framhaldsnám í söng. Magnús, sem er bassi sendi árið 1992 frá sér plötuna Nú tindra stjörnur: úr söngbók séra Friðriks.

Vissir þú að Jón Sigurðsson (Jón í bankanum) var aðeins fimmtán ára gamall þegar hann samdi Komdu í kvöld sem Raggi Bjarna gerði síðar ódauðlegt.