Veturinn 1984-85 (á að giska) var starfrækt hljómsveit hugsanlega í Kópavogi sem bar heitið Helmut.
Meðlimir þessarar sveitar voru þeir Ari Einarsson gítarleikari, Skarphéðinn Þór Hjartarson hljómborðsleikari, Sigurður Halldórsson bassaleikari og Birgir Baldursson trommuleikari. Sveitin gæti hafa starfað innan Menntaskólans í Kópavogi en hún lék m.a. í hæfileikakeppni sem haldin var á skemmtistaðnum Safari um haustið 1984, einnig gæti hún hafa leikið undir söng MK-kvartettsins á skemmtunum
Óskað er eftir frekari upplýsingum um hljómsveitina Helmut.