Hentai (1999)

Hentai

Hljómsveitin Hentai á Akranesi sigraði tónlistarkeppni NFFA í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi haustið 1999 en það var árleg tónlistarkeppni í skólanum og bar þarna yfirskriftina Millenium.

Meðlimir Hentai voru þeir Davíð Rósinkrans Hauksson bassaleikari, Márus Hjörtur Jónsson gítarleikari, Sverrir Aðalsteinn Jónsson trommuleikari og Freyr Rögnvaldsson söngvari.

Hentai virðist ekki hafa starfað lengi undir þessu nafni en sveitin birtist lítið breytt ári síðar undir nafninu Hemra.