Hjálparsveitin var hópur söngvara sem sendi frá sér lagið Neitaðu að vera með, sumarið 1990 en lagið kom út á tveimur safnplötum það sumar, annars vegar á Hitt & þetta aðallega hitt alla leið og hins vegar á kasettu- og geisladiskaútgáfu Bandalaga 2 þar sem titill lagsins var reyndar Neitum að vera með.
Lagið var hluti af vímuvarnaátaki sem Lions-hreyfingin stóð fyrir um þetta leyti en Jakob Frímann Magnússon samdi lagið og textann og hélt utan um verkefnið. Söngvararnir sem sungu lagið voru þeir Helgi Björnsson, Egill Ólafsson, Bubbi Morthens, Stefán Hilmarsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson en fleiri söngvarar komu jafnframt að kórsöng þess. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hljóðfæraleikara í laginu.














































