
Bertha Biering
Glatkistan hefur fjögur afmælisbörn á skrá í dag sem eitthvað hafa með tónlist að gera:
Guðni Már Henningsson útvarpsmaður með meiru, ljóðskáld og tónlistarmaður (1952-2021) hefði átt afmæli á þessum degi. Guðni Már hefur starfað við vinsældir hjá Ríkisútvarpinu í áratugi og hefur náð eins konar trúnaðarsambandi við marga af þeim hlustendum sem hlusta á næturútvarp hans. Hann hefur einnig starfað í hljómsveitunum Tass og Rasp auk þess að koma við sögu á fáeinum plötum
Keflvíkingurinn Gunnar Ingi Guðmundsson er fjörutíu og fimm ára gamall í dag. Gunnar Ingi sem nam tónlist hér heima og í Bandaríkjunum hefur m.a. leikið á bassa með hljómsveitum eins og Títus, Safnaðarfundi eftir messu og Tópaz, hann hefur einnig samið töluvert af lögum, m.a. fyrir Ragnheiði Gröndal, Skítamóral og Sigurjón Brink og jafnframt hefur komið út jólaplata með lögum eftir hann. Þá hefur hann einnig fengist við kvikmyndatónlist.
Bertha Biering söngkona er sjötíu og sjö ára gömul í dag. Bertha kom ung fram á sjónarsviðið sem efnileg söngkona en söngferill hennar var þó fremur stuttur. Hún söng með hljómsveitum eins og J.J. quintet, E.M. sextett og Sextett Óla Ben, auk þess sem hún söng bakraddir á nokkrum smáskífum á sjöunda áratugnum.
Ásgeir Sverrisson harmonikkuleikari og hljómsveitarstjóri hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést 2008. Ásgeir (f. 1928) starfrækti lengstum eigin gömludansasveit, Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar ásamt eiginkonu sinni Sigríði (Siggu Maggý) Magnúsdóttur söngkonu. Ásgeir var einnig í öðrum hljómsveitum en þeirra á meðal má nefna E.K. kvartettinn, Hljómsveit Carls Billich, Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Óskars Cortes.
Vissir þú að Eyþór Þorláksson gítarleikari gaf út plötu á Spáni árið 1964?














































