
Heba frá Siglufirði
Hljómsveitin Heba starfaði um tíma á Siglufirði árið 2005 en sveitin var skipuð tónlistarmönnum á grunnskólaaldri.
Meðlimir Hebu voru þeir Aron Ingi Kristjánsson gítarleikari, Hlynur Sigurðarson bassaleikari, Vigfús Fannar Rúnarsson gítarleikari og Þórhallur Dúi Ingvarsson trommuleikari en einnig söng Þórarinn Hannesson kennari þeirra úr Grunnskóla Siglufjarðar eitthvað með sveitinni þegar hún kom fram opinberlega.














































