Hljómsveit Magnúsar Einarssonar og nágrennis (1970 / 2012)

Hljómsveit Magnúsar Einarssonar og nágrennis starfaði sem danshljómsveit á Seyðisfirði árið 1970 eða um það leyti. Það munu hafa verið Magnús Einarsson, Ingólfur Steinsson og Gylfi Gunnarsson (og e.t.v. fleiri) sem starfræktu þessa sveit en þeir félagar áttu fáeinum árum síðar eftir að stofna hljómsveitina Þokkabót.

Sveitin lá í marga áratugi í dvala uns hún var endurreist árið 2012 og kom þá nokkrum sinnum fram á skemmtistaðnum Ob-la-dí Ob-la-da í Reykjavík. Ekki liggur fyrir hvernig sveitin var skipuð þá.