Hljómsveit Neskaupstaðar (einnig stundum nefnd Danshljómsveit Neskaupstaðar) starfaði á Norðfirði á sjötta áratug síðustu aldar.
Elstu heimildir um þessa sveit eru frá árinu 1951 en hún mun hafa starfað allt til 1958, hún lék mestmegnis á dansleikjum í heimabyggð og nágrenni og t.a.m. mun hún hafa leikið alloft á böllum tengdum sumarhátíðum og héraðsmótum sjálfstæðismanna í Egilsstaðaskógi. Afar takmarkaðar upplýsingar er að finna um þessa sveit en líklega var Höskuldur Stefánsson í eins konar forsvari fyrir hana – að minnsta kosti síðari hluta starfstíma sveitarinnar, fyrir liggur að bræðurnir Lárus og Birgir Sveinssynir léku með henni um tíma allavega og einnig að Jóhanna Óskarsdóttir söng með sveitinni sumarið 1953, og Svavar Lárusson átti síðar eftir að syngja með henni síðar.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um Hljómsveit Neskaupstaðar.














































