
Bryndís Halla Gylfadóttir
Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:
Hér er fyrst nefndur gítarleikarinn Trausti Thorberg en hann lést árið 2021. Trausti (fæddur 1927) lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. Krummakvartettnum, Neistum og hljómsveitum Eyþórs Þorlákssonar, Carls Billich og Þóris Jónssonar, auk KK-sextetts en hann var einn af stofnmeðlimum þeirrar sveitar. Trausti starfrækti ennfremur eigin sveit um tíma.
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari á stórafmæli en hún er sextug í dag, hún er með fremstu sellóleikurum landsins og hefur þrátt fyrir klassískan bakgrunn starfað jafnt með klassíska geira tónlistarinnar á Íslandi og þeim poppaðri. Hún hefur leikið inn á fjölmargar plötur í gegnum tíðina, beggja megin línunnar milli klassíkur og léttari tónlistar. Hún hefur einnig gefið út sínar eigin.
Þá á Þorbjörg Daphne Hall sellóleikari og doktor í tónlistarfræðum einnig stórafmæli en hún er fertug þessum degi, hún hefur gert garðinn frægan með Hjaltalín en hefur einnig leikið með Drýas. Sellóleik hennar má einnig heyra á plötum annarra flytjenda s.s. Fræ og Bubba Morthens svo dæmi séu nefnd.
Elsa Sigfúss (Elsa Guðrún Kristín Sigfúsdóttir) söngkona (f. 1908) átti einnig afmæli þennan dag. Elsa var altsöngkona en hafði einnig lært á selló og píanó, hún starfaði allan sinn feril í Danmörku og er sá Íslendingar sem hefur sungið inn á flestar plötur, á annað hundrað talsins. Elsa lést árið 1979.
Vissir þú að fyrr á þessari öld var starfandi stúlknahljómsveit undir nafninu Svínkurnar?














































