
Birkir Freyr Matthíasson
Afmælisbörn dagsins eru sex á þessum degi:
Pétur Östlund trommuleikari er áttatíu og eins árs í dag, hann lék með mörgum af þekktustu sveitum bítlatímabilsins og eru Hljómar og Óðmenn þeirra þekktastar en einnig með sveitum eins og Hljómsveit Finns Eydal, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Musica prima og Útlendingahersveitinni. Hann var síðar kunnari fyrir djasstrommuleik og er mjög virtur sem slíkur. Pétur á að baki eina sólóplötu.
Birkir Freyr Matthíasson trompetleikari á stórafmæli en hann er fimmtugur á þessum degi. Birkir Freyr hefur starfað með hljómsveitum s.s. Jagúar, Sunnan sex, Bréfsnjef kvartettnum, Stórsveit Reykjavíkur og Samspili Óla Jóns en hefur fyrst og fremst verið session maður og leikið þ.a.l. inn á fjölda platna annarra listamanna, hann hefur jafnframt starfað töluvert í leikhúsinu.
Sigurjón Skæringsson rokksöngvari fagnar í dag sextíu og tveggja ára afmæli. Sigurjón hefur sungið og leikið á gítar með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina en hér eru nefndar sveitir eins og Chernobyl, Stálfélagið, Mæðusöngvasveit Reykjavíkur, Bárujárn og Þjófar.
Aðalsteinn Bjarnþórsson (stundum áður kallaður Alli Langbrók) gítarleikari og söngvari er sextugur og á því stórafmæli á þessum degi. Aðalsteinn var nokkuð áberandi í tónlistarsenunni hér áður og starfaði þá með hljómsveitum eins og Langbrók, Stiftamtmannsvalsinum, Útrás, Cuba libre, Doriu og Gypsy.
Svanur D. Vilbergsson gítarleikari og tónskáld er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Svanur sem kemur upphaflega frá Stöðvarfirði nam hér heima og síðan í Bretlandi og víða erlendis og hefur komið fram víða um lönd á tónleikum en hann starfar við kennslu í dag. Hér áður lék hann með fáeinum hljómsveitum og hér má nefna Coma, Blúsbrot Garðars Harðar og Steinþór. Svanur hefur sent frá sér sólóefni.
Dóra Sigurðsson söngkona hefði einnig átt afmæli þennan dag. Dóra fæddist 1892 í Þýskalandi og kynntist Haraldi Sigurðssyni píanóleikara þar en þau giftust síðar. Hún starfaði lengst af í Danmörku en kom reglulega hingað til lands ásamt eiginmanni sínum til tónleikahalds og varð fyrsta konan til að syngja inn á plötu hérlendis. Dóra lést 1985.
Vissir þú að Magga Stína og Hörður Bragason hafa gefið út jólaplötu saman – þar má heyra lagið Jólabarnið.














































