Afmælisbörn 21. desember 2024

Heiðdís Norðfjörð

Afmælisbörnin í tónlistargeiranum eru fimm talsins í dag:

Pétur Grétarsson slagverksleikari er sextíu og sex ára gamall í dag, hann hefur mest tengst djassgeiranum en hefur þó leikið með ýmsum öðrum sveitum. Þar má til dæmis nefna Stórsveit Reykjavíkur, Tarzan, Síðan skein sól, Arnald og kameldýrin, Karnival, Havanabandið og Smartband. Pétur hefur mikið starfað við kvikmyndir og leikhús, og leikið á hinar ýmsu plötur sem sessionleikari. Hann hefur ennfremur annast dagskrárgerð í útvarpi.

Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona er fjörutíu og sjö ára gömul í dag. Hún vakti fyrst athygli í hljómsveitinni Áttavillt og Söngsystrum en áður hafði hún verið í Doríu og fleiri sveitum. Í seinni tíð hefur henni brugðið fyrir í Nova, Eurobandinu og Frostrósum en hún hefur einnig gefið út sólóplötur og sungið á plötum annarra tónlistarmanna. Regína er þekktust í dag fyrir Eurovision framlag sitt en hún hefur einnig sungið í Landslaginu, Ljósalaginu og öðrum smærri söngkeppnum.

Pétur (Árni) Jónsson óperusöngvari (1884-1956) hefði átt afmæli þennan dag en hans er í dag minnst sem þess Íslendings sem fyrstur gaf út plötu (árið 1910). Pétur gaf út á sjötta tug 78 snúninga platna, söng í fjölmörgum óperuuppfærslum m.a. hér heima en hann starfaði lengst af í Þýskalandi.

Tónlistarmaðurinn Þórarinn Hannesson fagnar stórafmæli í dag en hann er sextugur. Þórarinn sem hefur sent frá sér plötur með frumsömdu efni hefur einnig starfað með miklum fjölda hljómsveita í gegnum tíðina og hér má nefna Hey í harðindum, Tíbíu, Bíldudals búggana, Tóta og ungana, Vesturfarana, Brest, Cameliu 2000, Græna bílinn hans Garðars og Harðlífi, svo aðeins fáeinar séu nefndar.

Og að síðustu er hér nefnd Akureyringurinn Heiðdís Norðfjörð (1940-2021) sem samdi söngleikina og tónlistina um Pílu Pínu og Dolla dropa, sem komu út um og eftir 1980 og nutu mikilla vinsælda. Heiðdís var jafnframt barnabókahöfundur og annaðist dagskrárgerð fyrir börn í Ríkisútvarpinu á sínum tíma auk þess sem nokkrar kassettur komu út sem höfðu að geyma upplestur hennar á sögum.

Vissir þú að Magnús Kjartansson samdi bæði lagið og textann við Eitt lítið jólalag?