Hornaflokkur Akureyrar [1] (1893-1900)

Hornaflokkur Akureyrar um 1895

Magnús Einarsson tónlistarfrömuður á Akureyri stofnaði fyrstu lúðrasveitina sem starfaði þar í bænum en hún gekk undir nafninu Hornaflokkur Akureyrar.

Hornaflokkur Akureyrar var stofnaður árið 1893 en mun reyndar ekki hafa tekið til starfa fyrr en sumarið eftir þegar Magnús kom frá vetrardvöl í Kaupmannahöfn þar sem hann lagði stund á tónlistarnám, og hafði þá meðferðis nokkur hljóðfæri í farteskinu með sér til landsins.

Stofnmeðlimir sveitarinnar voru þeir Ketill Sigurgeirsson trompetleikari, Júlíus Júlíníusson althornleikari, Gunnar Matthíasson pikkolóhornleikari, Sigtýr Jónsson básúnuleikari, Jón Jóhannesson tenórhornleikari, Páll Magnússon túbuleikari og Magnús sjálfur sem lék á kornett og stjórnaði sveitinni auk þess að kenna þeim félögum á hljóðfærin. Ekki liggur hvort einhverjar mannabreytingar eða fjölgun hafi orðið í sveitinni en hún mun hafa starfað í sex ár eftir því sem heimildir herma, sem hefur þá verið til aldamótaársins 1900.

Magnús endurreisti sveitina nokkrum árum síðar en þá hlaut hún nýtt nafn, Lúðrasveitin Hekla.