Hornaflokkur Tónmenntaskólans á Akureyri (1992-94)

Lítil lúðrasveit var starfandi innan Tónmenntaskólans á Akureyri en ekki liggur ljóst fyrir hversu lengi hún starfaði þó, hún var stofnuð fljótlega eftir að Tónmenntskólinn á Akureyri var settur á laggirnar í upphafi árs 1992 og starfaði að minnsta kosti fram á vorið 1994.

Sveitin sem gekk undir nafninu Hornaflokkur Tónmenntaskólans á Akureyri, var allan tímann undir stjórn Roars Kvam en hann var skólastjóri tónlistarskólans. Sveitin lék í nokkur skipti opinberlega, aðallega innan skólans en einnig á viðburðum utan hans.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um Hornaflokk Tónmenntaskólans á Akureyri.