Afmælisbörn 28. febrúar 2025

Helgi Sæmundur Guðmundsson

Afmælisbörnin eru átta á þessum degi:

Fyrsta skal nefna Maríu Baldursdóttur söngkonu, hárgreiðslumeistara og fyrrum fegurðardrottningu Íslands en hún er sjötíu og átta ára gömul í dag. María (sem er ekkja Rúnars Júlíussonar) hóf söngferil sinn með í Keflavík með Skuggum en söng síðar með Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, Bluebirds, Heiðursmönnum, Geimsteini, Áhöfninni á Halastjörnunni og Rokksveit Rúnars Júl. María hefur gefið út tvær sólóplötur og safnplötu að auki.

Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari er fjörutíu og átta ára á þessum degi, hann hefur leikið með fjöldanum öllum af þekktum hljómsveitum en þar má nefna Flís tríóið, Baggalút, Hjálma, Memfísmafíuna, Hummus og Senuþjófana svo einhverjar séu nefndar en einnig hefur Valdimar leikið með óteljandi djasskvartettum. Hann hefur ennfremur leikið á plötum óteljandi listamanna.

Sauðkrækingurinn Helgi Sæmundur Guðmundsson er þrjátíu og átta ára gamall á þessum degi. Helgi Sæmundur vakti fyrst athygli þegar hann sigraði Rímnaflæði 2002 undir nafninu Evilmind og svo þegar hann sigraði Músíktilraunir nokkrum árum síðar með hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs, síðan þá hefur hann verið þekktur sem annar helmingur dúóanna Úlfur Úlfur og SXSXSX en hann hefur einnig verið í samstarfi við fjölda annarra tónlistarmanna.

Sturla Már Jónsson gítarleikari og söngvari fagnar sjötíu og átta ára afmæli sínu í dag. Sturlu Má þekkja margir úr hljómsveitum eins og Pónik og Sóló en hann hefur einnig starfað með sveitum eins og Skuggum og Garðari og Stuðbandinu svo önnur dæmi séu nefnd.

Tenór söngvarinn Hreinn Líndal Haraldsson er áttatíu og átta ára gamall á þessum degi. Segja má að söngferill hans hafi verið tvískiptur, annars vegar starfaði hann í óperum víða um Evrópu en kom svo heim og var á Íslandi um skeið áður en hann fluttist vestur um haf og söng eftir það í Bandaríkjunum. Þrjár plötur hafa komið út með söngvaranum.

Hreinn Líndal

Anna Friðriksson eða Anna Cristensen Hejnæs eins og hún hét reyndar (fædd 1889) átti þennan afmælisdag en hún lést árið 1960. Anna var stofnandi og eigandi Hljóðfæraverzlunar Reykjavíkur sem hún starfrækti til dauðadags en það var fyrsta og lengi vel eina plötuútgáfufyrirtæki landsins og um leið hljóðfæraverslun, sem starfar reyndar ennþá.

Elma (Ingibjorg) Gíslason (1910-87) tónlistarfrömuður meðal Vestur-Íslendinga í Winnipeg hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Hún stjórnaði kórum Vestur-Íslendinga, samdi tónlist, söng einnig sjálf og var sólóisti Sambandskirkjunnar í Winnipeg. Elma lauk háskólaprófum í tónlistarfræðum, söng og söngmennt.

Að síðustu er hér nefndur Jónas Helgason söngforkólfur en hann var fæddur á þessum degi árið 1839 og lést árið 1903. Jónas stofnaði fjölda söngfélaga og kóra á sínum tíma og kenndi jafnframt söng en hann var klárlega einn þeirra sem innleiddu sönglistina hér á landi, Jónas var ennfremur Dómkirkjuorganisti um tíma.

Vissir þú að Hörður Torfason trúbador er lærður leikari?