
úr HS stúdíói í Kópvavogi 1991
Tónlistarmaðurinn Hilmar Sverrisson hefur starfrækt hljóðver um langt skeið undir nafninu HS stúdíó (H.S. stúdíó) bæði á höfuðborgarsvæðinu og norður á Sauðárkróki.
HS stúdíó tók til starfa haustið 1991 í tengslum við Litla tónlistarskólann sem Hilmar rak í Furugrund í Kópavogi, þar var hann með aðstöðu til að hljóðrita tónlist og annað efni. Árið 1993 flutti Hilmar norður á Sauðárkrók en hann er Sauðkrækingur að uppruna, og þar varð hljóðverið mun stærra verkefni þar sem hann var m.a. í samstarfi við Sæluviku Sauðkrækinga og hljóðritaði þar efni í tengslum við sönglagakeppnir Kvenfélags Sauðkrækinga, sem síðan var gefið út á plötum. Hann hljóðritaði jafnframt fjöldan allan af plötum sem komið hafa út og hér má nefna plötur dúettsins Kúnzt – Ótrúleg orð, Kristjáns Stefánssonar frá Melhaga – Mitt hjartans mál og Minningarmál, Sveins M. Sveinssonar – Fegurðarþrá o.m.fl. Hilmar hefur jafnframt sjálfur leikið inn á margar þessara platna.
Hilmar flutti aftur suður til höfuðborgarsvæðisins um aldamótin og starfrækti þá áfram HS hljóðverið (og Litla tónlistarskólann) í Kópavogi, hann vinnur enn við hljóðvinnslu eftir því sem best verður séð.














































