
Hinrik Bjarnason
Í dag eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Söngkonan og lagahöfundurinn Védís Hervör Árnadóttir á fjörutíu og þriggja ára afmæli í dag. Védís vakti fyrst athygli fyrir söng sinn á Nemendamótum Verzló en hún hefur einnig gefið út tvær sólóplötur, 2001 og 07. Hún hefur einnig komið fram sem gestur á ýmsum útgefnum plötum og var ein Frostrósa sem fóru mikinn á jólatónleikamarkaðnum fyrir nokkru. Védís hefur látið sig félagsamál tónlistarkvenna varða en hún var um tíma formaður KÍTÓN.
Katrín Helga Andrésdóttir fagnar í dag þrjátíu og þriggja ára afmæli sínu. Katrín Helga sem gengur undir nafninu Special K sem sólólistamaður hefur sent frá breið- og smáskífur undir því nafni en hún er jafnframt ein af Reykjavíkurdætrum og hefur aukinheldur starfað með hljómsveitum eins og Hljómsveitt, Krika, Cyber og Ultraflex.
Sópran söngkonan Hallveig Rúnarsdóttir fagnar fimmtíu og eins árs afmæli. Hallveig sem er af frægu söngkyni og ein af okkar fremstu söngkonum nam hér heima og í Bretlandi og hefur sungið með sönghópum eins og Rinascente og Tríólógíu en hefur einnig sungið einsöng með hinum og þessum kórum við ýmis tækifæri, bæði á tónleikum og plötum.
(Jóhannes) Garðar Jóhannesson harmonikkuleikari átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést árið 2003. Garðar sem fæddist 1925, ólst upp við harmonikkuleik og lék sjálfur á sínu fyrsta balli aðeins þrettán ára gamall, hann lék síðan með fjölda hljómsveita s.s. fyrstu útgáfu Hljómsveitar Svavars Gests, auk þess að starfrækja einnig eigin hljómsveitir. Hljómsveitaferill Garðars spannaði yfir hálfa öld.
Hinrik Bjarnason fagnar í dag níutíu og eins árs afmæli. Hinrik var kunnur starfsmaður Sjónvarpsins lengi vel og var m.a. á bak við Stundina okkar í upphafi en hann var líka tónleikahaldari, plötuútgefandi og textahöfundur, hann er sjálfsagt þekktastur fyrir það síðast talda enda samdi hann texta við fjölmörg þekkt lög og þar má nefna jólalögin Jólasveinninn kemur í kvöld, Snæfinnur snjókarl, Klukknahljóm og Líður að jólum svo aðeins fáein séu nefnd. Þeir hafa komið út á fjölmörgum plötum og einnig hefur verið gefin út plata í hans nafni með textum hans.
Þá er einnig hér nefndur Magnús Einarsson tónlistarfrömuður á Akureyri sem fæddur var árið 1848 að öllum líkindum á þessum degi (en heimildum ber ekki nákvæmlega saman um það). Magnús stofnaði og stjórnaði fjölmörgum kórum og lúðrasveitum á Akureyri og nágrenni, starfaði sem organisti og söngkennari, og samdi einnig tónlist, hann má með réttu kalla manninn á bak við akureyskt tónlistar- og menningarlíf um aldamótin 1900. Magnús lést árið 1934.
Vissir þú að kvennasveitin Toffies starfaði í Kópavoginum um skamma hríð árið 1982?














































