Afmælisbörn 26. ágúst 2025

Bragi Valdimar Skúlason

Í dag eru níu tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar:

Daníel Ágúst Haraldsson tónlistarmaður er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Hann vakti fyrst athygli á menntaskólaárum sínum með hljómsveitinni Nýdanskri sem hann hefur starfað með, reyndar með hléum, allt til þessa dags. Áður hafði hann verið í hljómsveitinni Chorus. Daníel Ágúst hefur einnig verið í fremstu víglínu í sveitum eins og Gus gus og Esju sem eru af allt öðru tagi en einnig liggja eftir hann tvær sólóplötur, hann hefur aukinheldur verið nokkuð viðloðandi leikhústónlist. Daníel Ágúst fór sem fulltrúi Íslands í Eurovision keppnina 1989, þegar hann söng lag Valgeirs Guðjónssonar, Það sem enginn sér.

Gunnlaugur Helgason sem löngum hefur verið kenndur við dagskrárgerð og reyndar einnig húsasmíði, á sextíu og tveggja ára afmæli í dag. Gunnlaugur á sér tónlistarferil sem alltof fáir vita af en hann var á árum áður trommuleikari í hljómsveitinni Draumsýn sem starfaði í Réttarholtsskóla. Hann hefur lítið fengist við trommuleik hin síðari ár eftir því sem best er vitað.

Bragi Valdimar Skúlason, oftast tengdur við Baggalút og sjónvarpsþættina Orðbragð er fjörutíu og níu ára gamall í dag. Auk þess að vera afkastamikið texta og tónskáld hefur Bragi Valdimar komið víða við í tónlist, hann var til að mynda gítarleikari í hljómsveitum eins og Kalk, Klamidíu X, Sýróp, Níkaragva group og Zorglúbb.

Valur (Snær) Gunnarsson tónlistarmaður, blaðamaður og rithöfundur er líka fjörutíu og níu ára gamall í dag. Hann hefur gefið út sólóplötu og einnig efni í samstarfi við Gímaldin en hefur einnig starfað í hljómsveitum eins og Ríkinu, Val og regnúlpunum og Pétri. Hann var um tíma ritstjóri Grapevine.

Vestmannaeyingurinn Hermann Ingi Hermannsson er sjötíu og sex ára á þessum degi. Hermann Ingi hefur starfað með fjöldanum öllum af hljómsveitum og tónlistarfólki í gegnum tíðina og hér má nefna sveitir eins og Loga, Hrafna, Hot‘n sweet, Sín, Mjölni, Papa, Scruffy Murphy og Kelta en margar þessara sveita hafa þjóðlagatengingar.

Ingi T. Lárusson

Bjarni Frímann Bjarnason á einnig afmæli á þessum degi en hann er þrjátíu og sex ára gamall. Bjarni er fiðlu- og píanóleikari og hefur leikið með hinum ýmsum tónlistarhópum og inn á fjölda platna en hann hefur einnig fengist við hljómsveita- og kórstjórnun og hér má nefna strengjasveitina Skark og Mótettukórinn svo aðeins fátt eitt sé upp talið. Hann hefur jafnframt unnið til fjölda verðlauna fyrir tónlistarstörf sín.

Tónlistarmaðurinn Sölvi Jónsson sem gekk undir nafninu Dölli átti þennan afmælisdag einnig en hann lést árið 2020. Dölli sem var fæddur 1975, lét fyrst að sér kveða í tónlistinni í trúbadorakeppni Rásar 2 snemma á þessari öld en það var svo árið 2015 sem hann sendi frá sér sína fyrstu plötu og fjórar aðrar fylgdu í kjölfarið.

Soffía Karlsdóttir leik- og söngkona hefði einnig átt afmæli í dag en hún lést árið 2020. Soffía (fædd 1928) var kunn sem revíu- og kabarettleikkona en jafnvel enn þekktari fyrir lögin sem hún gaf út á plötum, þeirra á meðal voru Það er draumur að vera með dáta, Ég bíð þér upp í dans, Það sést ekki sætari mey og Bílavísur sem öll nutu fádæma vinsælda og eru ennþá þekkt í dag.

Þá hefði Seyðfirðingurinn Ingi T. Lárusson (f. 1892) átt afmæli í dag en hann var þekkt tónskáld á árum áður og samdi mörg kunn sönglög, þeirra á meðal má nefna Ó blessuð vertu sumarsól, Litla skáld á grænni grein, Það er svo margt og Ég bið að heilsa (Nú andar suðrið). Hann var einnig organisti og stjórnaði kórum eystra þrátt fyrir að hafa aldrei fengið tónlistarlega menntun. Ingi T. lést 1946 eftir veikindi.