Afmælisbörn 2. október 2025

Hreinn Valdimarsson

Afmælisbörn dagsins eru sex í dag, meirihluti þeirra eru trommuleikarar:

Birgir Baldursson trommuleikari á sextíu og tveggja ára afmæli í dag. Birgir hefur leikið með ógrynni hljómsveita þar sem fjölbreytileikinn er í fyrirrúmi og hann er án efa sá trommuleikari sem leikið hefur með flestum sveitum hérlendis, hér eru einungis fáein sýnishorn: S.H. draumur, Stífgrím, Hitchcock, Jónatan Livingstone kría, Sálin hans Jóns míns, Blúsboltarnir, Bundið slitlag, DBD, Gakk, Helmut, Svefngalsar, Bless, Belfigor, Danshljómsveit Íslands og Craftblock.

Annar trommuleikari, Sigtryggur Baldursson á afmæli en hann er sextíu og þriggja ára. Hann er auðvitað þekktastur fyrir aukasjálf sitt, Bogomil Font og hefur starfrækt Milljónamæringana samhliða því en hann er einnig kunnur fyrir veru sína í Sykurmolunum (Sugarcubes), Þeyr, Kukl, Algorythmunum, DIP, Grindverki, Hattímas, Steintryggi og fleiri sveitum. Sigtryggur hefur verið ötull talsmaður fyrir réttindum og félagsmálum tónlistarmanna undanfarin ár.

Þriðji trommuleikarinn, Eysteinn Eysteinsson, á afmæli í dag en hann er fjörutíu og níu ára gamall á þessum degi. Eysteinn hefur leikið með fjölda hljómsveita og á mörgum plötum annarra tónlistarmanna, meðal sveita hans má nefna Not correct, Buff, Partýtertuna, Taktík, Vestanáttina, Yrju og Papa, svo fátt eitt sé upp talið.

Tónlistarmaðurinn Jóhannes Damian Patreksson er tuttugu og fimm ára gamall á þessum degi en hann gengur yfirleitt undir nafninu JóiPé og er þekktastur sem annar meðlimur dúósins JóiPé & Króli sem hafa sent frá sér nokkrar plötur þrátt fyrir ungan aldur. Meðal vinsælustu laga þeirra má nefna B.O.B.A., Í átt að tunglinu, Tveir koddar og Óska mér svo nokkur dæmi séu nefnd. JóiPé hefur starfað með fjölmörgum öðrum tónlistarmönnum.

Svo er komið að Hreini Valdimarssyni sem lengi vel var þekktur fyrir að vera tækni- og upptökumaður hjá Ríkisútvarpinu, hann er þó ekki síður þekktur fyrir varðveislu sína og yfirfærslu gamalla upptaka á stafrænt form. Færri vita að Hreinn er einnig tónlistarmaður og hefur m.a. leikið á munnhörpu inn á plötur. Hann er sjötíu og þriggja ára gamall í dag.

José Riba fiðluleikari (1907-95) átti ennfremur afmæli þennan dag. Hann fluttist til Íslands frá Spáni um miðja öldina og varð virkur í íslensku tónlistarlífi, hann kenndi tónlist, starfaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfrækti eigin hljómsveitir um árabil. Riba fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1956 og tók sér þá nafnið Ólafur Jósef Pétursson.