
Rafn Sveinsson
Að þessu sinni eru sex tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Þorlákur (Hilmar) Kristinsson Morthens eða bara Tolli Morthens á sjötíu og tveggja ára afmæli í dag. Allir þekkja listmálarann Tolla en margir muna líka eftir tónlistarferli hans, hann gaf út plötuna The boys from Chicago ásamt hljómsveitinni Ikarus árið 1983 en platan var einmitt lokaverkefni Tolla í listnáminu. Tolli hafði þá starfað með Gúanóbandinu auk þess að koma fram sem trúbador en hann hefur síðustu árin helgað sig myndlistinni eingöngu.
Sigurður Möller Sívertsen trommuleikari er þrjátíu og sex ára gamall á þessum degi. Sigurður er trymbill Grísalappalísu en gegndi einnig því hlutverki í Jakobínurínu og Dream central station. Hann hefur síðustu ár verið við kvikmyndagerðarnám erlendis, nú síðast í Bosníu Herzegóvínu.
Högni Egilsson tónlistarmaður einkum kenndur við hljómsveitina Hjaltalín er fertugur og fagnar því stórafmæli á þessum deg. Auk þess að starfa með Hjaltalín hefur hann einnig komið við í hljómsveitum eins og Gus gus, Múm, Norton og Saab en hann vinnur að sólóplötu um þessar mundir. Högni hefur vakið athygli fyrir að ræða opinskátt um geðhvarfasýki en hann glímir við þann sjúkdóm.
Rabbi Sveins eða Rafn Sveinsson eins og hann heitir reyndar, er áttatíu og fjögurra ára gamall í dag. Rabbi lék áður á trommur með fjöldanum öllum af hljómsveitum norðan heiða og hér má nefna sveitir eins og Hljómsveit Birgis Marinóssonar, Hljómsveit Hótel KEA, Hljómsveit Pálma Stefánssonar, Comet, Astro, Casablanca og Laxa auk þess sem hann starfrækti eigin hljómsveitir og gaf jafnvel út plötu.
Barnastjarnan Soffía Árnadóttir, helmingur tvíeykisins Soffía og Anna Sigga fagnar sjötíu og sex ára afmæli í dag. Soffía söng inn á nokkrar plötur ásamt Önnu Siggu í kringum 1960 og lög eins og Órabelgur, Komdu niður, Snjókarlinn (Komdu með mér út) og Sumar er í sveit urðu feikivinsæl í þeirra meðförum og heyrast jafnvel enn leikin í útvarpi.
Og að síðustu er hér nefndur Þorsteinn Magnússon (Stanya) gítarleikari en hann lést árið 2022. Þorsteinn (fæddur 1955) hafði verið í nokkrum óþekktum hljómsveitum eins og Formúlu og Litla matjurtagarðinum þegar hann gekk til liðs við Eik en síðar var hann í sveitum eins og Deildarbungubræðrum, Faraldri, Frökkum, Þey, Næturgölunum frá Venus og Draumasveitinni. Hann hefur einnig sent frá sér sólóplötur og hefur leikið á plötum Bubba Morthens, Jóhanns G. Jóhannssonar og Herberts Guðmundssonar svo nokkur dæmi séu nefnd.


