Afmælisbörn 5. nóvember 2025

Hreiðar Pálmason

Sjö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru skráð hjá Glatkistunni á þessum degi:

Viðar Jónsson tónlistarmaður er sjötíu og átta ára gamall í dag. Viðar hefur mestmegnis verið viðloðandi pöbbabransann í gegnum tíðina, hann hefur leikið og sungið með fjölda sveita til langs tíma auk þess að starfa eins síns liðs. Meðal sveita sem Viðar starfaði með má nefna Garða og Gosa, Plöntuna, Áhöfnina á Halastjörnunni, Kúrekana, Duo spez og Geisla. Um miðjan áttunda áratuginn sendi hann frá sér lagið Sjóarinn síkáti sem naut nokkurra vinsælda en Viðar hefur jafnframt sent frá sér nokkrar plötur, einn og í samstarfi við aðra.

Daði Kolbeinsson óbóleikari fagnar í dag sjötíu og fimm ára afmæli sínu. Daði heitir í raun Duncan Campbell og flutti hingað til lands frá Skotlandi tvítugur að aldri, hann hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og fjölmörgum öðrum kammersveitum og öðrum sveitum en fengist einnig við tónlistarkennslu. Þá hefur hann leikið inn á ótal hljómplötur um ævina.

Ríkharður H. Friðriksson gítarleikari er sextíu og fimm ára gamall í dag. Ríkharð þekkja margir sem einn af gítarleikurum Fræbbblanna en hann hefur einnig starfaði með nokkrum öðrum hljómsveitum, hér má t.a.m. nefna sveitir eins og Október, Snillingana og Icelandi sound company.

Hreiðar Pálmason baritónsöngvari fagnar áttatíu og fimm ára afmæli sínu á þessum degi. Hreiðar hefur sungið með fjölda kóra á sínum ferli og söng á sínum tíma margsinnis einsöng með Karlakór Reykjavíkur, bæði á tónleikum og inn á hljómplötur en einnig kom út ein plata í hans nafni árið 2005 undir titlinum Hreiðar Pálmason ásamt Karlakór Akureyrar Reykjavíkur og Karlakór Akureyrar.

Soffía Vagnsdóttir tónlistarkona frá Bolungarvík er sextíu og sjö ára gömul í dag. Soffía er af tónlistarættum, ein af Vagnsbörnunum að vestan og söng inn á plötur þeirra systkina en hefur jafnframt gefið út barnaplötu – Trommur og töfrateppi með eigin lögum. Soffía söng á árum áður með hljómsveitunum Krosstré og Mímósa.

Þá átti Snjólaug Anna Sigurðsson (Snjólaug Anna Sigurðardóttir) söngkona, organisti, kórstjóri og píanóleikari einnig afmæli á þessum degi. Hún var fædd árið 1914 í Kanada í Íslendingasamfélaginu og var áberandi í því samfélagi við tónlistartengd verkefni, hún kom í heimsókn til Íslands þrívegis og hélt hér tónleika. Snjólaug Anna lést árið 1979,

Að síðustu er hér nefndur Bolvíkingurinn Magnús Hávarðarson gítarleikari (1962-2020) sem átti afmæli þennan dag en hann var líkast til þekktastur fyrir að starfa með hljómsveitinni Kan í Bolungarvík, hann starfaði einnig með fleiri sveitum s.s. Víkurbandinu sem var eins konar húshljómsveit í Víkurbæ þar sem Magnús var staðarhaldari um árabil. Magnús samdi einnig tónlist og þess má geta að hann átti eitt sinn lag í undankeppni Eurovision.