Quadruplos (2006-2016)

Quadruplos

Quadruplos var danstónlistardúó sem starfaði í um áratug á fyrsta og öðrum áratug þessarar aldar, sveitin sendi frá sér eina plötu og var töluvert virk á dansstöðum borgarinnar.

Quadruplos mun hafa verið stofnuð árið 2006, lék þá á tvennum tónleikum en lagðist svo í híði í þrjú ár. Sveitin kom aftur fram á sjónarsviðið árið 2009, skipað Magnúsi Birki Skarphéðinssyni og Tómasi Þórarni Magnússyni en ekki er alveg ljóst hvort þeir tveir skipuðu sveitina upphaflega einir eða hvort einhverjar mannabreytingar hefðu þá orðið á henni.

Þeir félagar urðu fljótlega virkir í danstónlistarsenunni um haustið 2009, léku það sem skilgreint hefur verið sem klúbbateknó, m.a. á Airwaves hátíðinni, á Weirdcore kvöldum á Jacobsen og víðar, auk þess að eiga efni á safnplötunni Weirdcore 2 sem kom út í árslok.

Árið 2010 héldu þeir Quadruplos-liðar áfram á svipaðri braut og á fjölbreyttum vettvangi, komu til að mynda nokkuð fram í kringum listviðburði s.s. myndlistarsýningar en Magnús er útskrifaður myndlistarmaður frá LHÍ, LungA og Northern wave kvikmyndahátíðina í Grundarfirði og síðar áttu þeir eftir að leika tónlist sína á tónlistarhátíðum eins og Reykjavík music mess, Extreme chill festival og Secret solstice auk þess að koma margsinnis fram á Menningarnæturviðburðum, Iceland Airwaves og Innipúkanum. Þá eru ótaldir aðrir tónleikar með dúóinu á stöðum eins og Venue, Gauknum, Húrra og Sódómu.

Quadruplos unnu árið 2010 endurhljóðblöndun á lagi á plötu Miri, og það sama ár kom út eina plata dúettsins, hún var samnefnd sveitinni og hafði að geyma átta lög. Skífan sem var gefin út í takmörkuðu og númeruðu upplagi, hlaut mjög góða dóma í Fréttablaðinu. 2013 áttu þeir félagar lag á fyrstu Lady boy safnkassettunni og komu við sögu sem lagahöfundar á plötu Berglindar Ágústsdóttur – I am your girl, annað virðist ekki hafa komið út með Quadruplos efnislega en nokkuð er af tónlist á Soundcloud síðu sveitarinnar.

Quadruplos var misvirk og stundum leið nokkur tími milli þess sem fréttist af sveitinni en hún starfaði allt til árins 2016.

Efni á plötum