F/8 – Efni á plötum

F/8 – Bölvun fylgi þeim [ep] Útgefandi: Erðanúmúsík Útgáfunúmer: E-31 Ár: 2018 1. Útjaskaðir nemendur 2. Bókassa 3. Bölvun fylgi þeim 4. Kennari Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur]

Tríó Kristjáns Magnússonar (1952-92)

Tríó Kristjáns Magnússonar píanóleikara var til í margs konar útfærslum, frá árinu 1952 og allt til ársins 1992 eða í um fjóra áratugi. Eins og gefur að skilja starfaði tríóið með hléum og með mismunandi meðlimaskipan. Fyrst er tríós Kristjáns getið í fjölmiðlum 1952 en það ár lék það á djasshátíð, m.a. með saxófónleikaranum Ronnie…

Tríó Óla (1960-70)

Tríó Óla starfaði á Fljótsdalshéraði allan sjöunda áratug síðustu aldar og líklega eitthvað fram á þann áttunda þótt ekki finnist nákvæmar upplýsingar um það, tríóið skartaði fyrstu hljómsveitarsöngkonu Austfjarða. Tríó Óla mun hafa verið stofnað 1960 og voru meðlimir þess í upphafi Óli Kjerúlf harmonikkuleikari sem var hljómsveitarstjóri, Hrafnkell Björgvinsson trommuleikari og Methúsalem Kjerúlf gítarleikari.…

Tríó Oddnýjar (1986-87)

Tríó Oddnýjar mun hafa verið skammlíf sveit, starfandi veturinn 1986-87. Meðlimir þessarar sveitar voru Oddný Sturludóttir (sem þá hefur verið á ellefta ári) og bróðir hennar Snorri Sturluson, þriðji meðlimur sveitarinnar var kallaður Dalli en ekki liggur fyrir hvert nafn hans var, né hver hljóðfæraskipan þremenninganna var.

Tríó Nausts (1969-80)

Veitingahúsið Naustið við Vesturgötu bauð lengi vel upp á lifandi tónlist fyrir gesti sína og á árunum 1954-70 hafði Naust-tríóið annast þann tónlistarflutning undir stjórn Carls Billich. Frá 1969 til 1980 var hins vegar Tríó Nausts auglýst í blöðum samtímans sem hljómsveit hússins og er þar er um aðra sveit að ræða. Upplýsingar um þessa…

Tríó Magnúsar Einarssonar (1960)

Allar tiltækar upplýsingar óskast um Tríó Magnúsar Einarssonar sem starfaði árið 1960, að öllum líkindum á Egilsstöðum eða á Héraði, hverjir skipuðu tríóið með honum og hversu lengi það starfaði.

Hljómsveit Magnúsar Péturssonar – Efni á plötum

Gestur Þorgrímsson – Á Lækjartorgi / Rómeó og Júlía [78 sn.] Útgefandi: Músikbúðin Tónika Útgáfunúmer: Tónika P 109 Ár: 1954 1. Á Lækjartorgi 2. Rómeó og Júlía Flytjendur: Gestur Þorgrímsson – söngur Hljómsveit Magnúsar Péturssonar: – Magnús Pétursson – píanó – Björn R. Einarsson – harmonikka – Jón Sigurðsson – kontrabassi  – Gunnar Egilson – klarinett Björn R. Einarsson, Gunnar Egilson og Öskubuskur…

Hljómsveit Magnúsar Péturssonar (1953-73)

Píanóleikarinn Magnús Pétursson frá Akureyri starfrækti nokkrar hljómsveitir um ævi sína en sumar þeirra virðast hafa verið settar saman einvörðungu fyrir plötuupptökur, aðrar léku á skemmtistöðum höfuðborgararinnar. Fyrsta sveitin sem starfaði í nafni Magnúsar var í Keflavík árið 1953 en því miður eru heimildir um þessa sveit af skornum skammti. Sveitin lék mestmegnis í Bíókaffi…

Tríó Ólafs Gauks – Efni á plötum

Adda Örnólfs og Ólafur Briem [78 sn.] Útgefandi: Músikbúðin Tónika Útgáfunúmer: P 101 Ár: 1954 1. Indæl er æskutíð 2. Íslenzkt ástarljóð Flytjendur: Adda Örnólfs – söngur Ólafur Briem – söngur tríó Ólafs Gauks: – Ólafur Gaukur Þórhallsson – [?] – [engar upplýsingar um aðra flytjendur] Öskubuskur [78 sn.] Útgefandi: Músikbúðin Tónika Útgáfunúmer: P 103…

Tríó Ólafs Gauks (1948-56 / 2000-01)

Ólafur Gaukur Þórhallsson gítarleikari starfrækti fjöldann allan af hljómsveitum á sínum tíma og voru þar á meðal tríó en fyrsta hljómsveit Ólafs var einmitt tríó. Ólafur Gaukur var aðeins átján ára þegar hann stofnaði tríó í eigin nafni árið 1948, ásamt honum voru í tríóinu Kristján Magnússon píanóleikari og Hallur Símonarson bassaleikari en jafnframt söng…

Tríó Óla Stolz (1992-)

Kontrabassaleikarinn Ólafur Stolzenwald hefur í gegnum tíðina starfrækt djasstríó í ýmsum myndum, elstu heimildir um slíkt tríó eru frá árinu 1992. Ýmsir hljóðfæraleikarar hafa leikið með Ólafi í þessum tríóum og hefur algengasta form þeirra verið bassi, tromma og píanó en einnig aðrar útfærslur s.s. bassi, píanó og trompet eða jafnvel bassi, gítar og trompet.…

Tríó Óla Skans (1997)

Tríó Óla Skans er langt frá því að vera með þekktustu rappsveitum íslenskrar tónlistarsögu en hún skipar þar þó nokkurn sess þar eð hún var að öllum líkindum fyrst sinnar tegundar til að rappa einvörðungu á íslensku. Tríó Óla Skans var líklega stofnuð sérstaklega til að taka þátt í Músíktilraunum Tónabæjar en þar birtist hún…

Tríó Ólafs Péturssonar (1953)

Allar upplýsingar um Tríó Ólafs Péturssonar, sem starfaði árið 1953, væru vel þegnar. Kunnugt er að José Riba (1907-95) tók upp íslenska nafnið Ólafur Pétursson en það var ekki fyrr en 1956, svo ekki er víst að um sama mann sé að ræða.

Tríó Ólafs ósýnilega (1994)

Tríó Ólafs ósýnilega var dúett þrátt fyrir nafnið en meðlimir þess voru Jón Ingólfur Guðmundsson söngvari og gítarleikari og Kristján Már Hauksson söngvari og gítarleikari. Ólafur hinn ósýnilegi hefur því væntanlega verið þriðji meðlimurinn. Líkur eru á að um hafi verið að ræða skammlíft samstarf. Ríflega áratug fyrr hafði verið starfandi hljómsveit sem gekk undir…

Tríó Ólafs Kristjánssonar – Efni á plötum

Ólafur Kristjánsson – Gamlar minningar Útgefandi: CordAria Útgáfunúmer: CACD 559 Ár: 2000 1. Cheek to cheek 2. Summertime 3. Vem kan segla förutan vind 4. Don‘t blame me 5. St. Louis blues 6. Blue moon 7. It‘s only a paper moon 8. Misty 9. Taking a chance to easily 11. Autumn leaves 12. Hymn to…

Tríó Ólafs Kristjánssonar (1980 / 2000)

Ólafur Kristjánsson (Óli Kitt) starfrækti tvívegis tríó í Bolungarvík, annars vegar árið 1980 og hins vegar um tveimur áratugum síðar en síðarnefnda útgáfan sendi frá sér plötu. Engar upplýsingar er að finna um tríó það sem Ólafur rak í eigin nafni árið 1980 og hugsanlega starfaði sú sveit í einhvern tíma. Allar upplýsingar um það…

Afmælisbörn 21. mars 2018

Á þessum degi eru afmælisbörnin tvö á skrá Glatkistunnar: Bergsveinn Arilíusson söngvari er fjörutíu og fimm ára, hann var áberandi á árunum fyrir og um aldamótin og söng lengst af með hljómsveitinni Sóldögg en einnig með Pöpum. Áður hafði hann vakið athygli með Ðí Kommittments og Acid juice, og 1993 kom út platan Kærleikur sem…

Blúshátíð í Reykjavík 2018 nálgast

Senn líður að hinni árlegu Blúshátíð í Reykjavík en hún fer fram í dymbilvikunni nú fyrir páska. Hátíðin hefur að geyma þrenna stórtónleika á Hilton Reykjavík Nordica þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld (skírdag) og verður Klúbbur Blúshátíðar opinn eftir alla tónleikana þar sem gerast undur og stórmerki, þar sem reynsluboltar, ungliðar og frægir leynigestir hræra saman…

Afmælisbörn 20. mars 2018

Afmælisbörnin tónlistartengdu eru fjögur að þessu sinni: Tónskáldið Finnur Torfi Stefánsson er sjötíu og eins árs gamall í dag, hann hefur samið fjölbreytilega tónlist og má þar nefna óperu, hljómsveitaverk og verk fyrir einleikshljóðfæri, kammertónlist og rokk en á árum áður var hann í fjölmörgum hljómsveitum á tímum bítla og blómabarna. Þekktustu sveitir hans eru…

Dagskrá í tilefni aldarminningu Jórunnar Viðar

Nú um nýliðna helgi hófu Erla Dóra Vogler söngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari dagskrá helgaða tónskáldinu Jórunni Viðar en sú dagskrá mun standa yfir næsta árið með fjölda tónleika tileinkaða sönglögum hennar og útsetningum á þjóðlögum, og útgáfu geislaplötu svo dæmi séu nefnd. Tilefnið er aldarminning Jórunnar Viðar en hún fæddist fullveldisárið 1918 og…

Afmælisbörn 19. mars 2018

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu dagsins: Fyrstan skal nefna Sigurð Björnsson óperusöngvara sem er áttatíu og sex ára í dag. Hann nam söng fyrst hér heima hjá Guðmundi Jónssyni, Kristni Hallssyni og fleirum en fór til framhaldsnáms í Þýskalandi, þar starfaði hann um árabil. Ein fjögurra laga plata með jólasálmum kom út hér heima…

Afmælisbörn 18. mars 2018

Eftirfarandi eru þrjú afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Selfyssingurinn Einar (Þór) Bárðarson, oft nefndur umboðsmaður Íslands, er fjörutíu og sex ára. Einar hefur komið víða við í tónlistarlegum skilningi en þekktastur er hann þó fyrir umboðsmennsku fyrir Nylon. Hann hefur einnig sinnt umboðsmennsku fyrir ýmsa aðra, samið tónlist (m.a. Ertu þá farin? með Skítamóral og Eurovision…

Afmælisbörn 17. mars 2018

Fjórir tónlistarmenn koma að þessu sinni við sögu afmælisbarna dagsins: Ingólfur Sigurðsson trommuleikari er fjörutíu og átta ára. Hann er maður margra hljómsveita og starfar iðulega í mörgum í senn. Fyrsta sveit Ingólfs var líkast til hljómsveitin Chorus en síðan hafa þær komið í röðum og eftirfarandi runa er aðeins sýnishorn; Blátt áfram, Rauðir fletir,…

Afmælisbörn 16. mars 2018

Glatkistan hefur eitt afmælisbarn á takteinum í dag: Páll Óskar Hjálmtýsson hinn eini sanni er fjörutíu og átta ára gamall. Hann þarf vart að kynna en hann kom fyrst fram á sjónarsviðið á ævintýraplötum Gylfa Ægissonar, plötum Áhafnarinnar á Halastjörnunni og plötu með tónlistinni úr leikritinu Gúmmí Tarzan en allt þetta var þegar hann var…

Afmælisbörn 15. mars 2018

Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni á Glatkistunni: Sigurður Halldór Guðmundsson (Siggi Hjálmur) hinn ótrúlega fjölhæfi tónlistarmaður er fertugur á þessum degi en hann er í mörgum af þekktustu sveitum íslenskrar tónlistarsögu, þar má nefna hljómsveitir eins og Hjálma, Senuþjófana, Baggalút, Memfísmafíuna, Tregasveitina og Skuggasveina en hann hefur einnig sungið og leikið á hljóðfæri…

Afmælisbörn 14. mars 2018

Í dag eru þrjú tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Bernharður St. Wilkinson (Bernard Wilkinson) stjórnandi og flautuleikari er sextíu og sjö ára. Hann er Breti sem kom hingað til lands 1975 til að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur starfað hér meira og minna síðan, leikið inn á fjöldann allan af plötum og stjórnað hljómsveitum…

Tríó Kristjáns Guðmundssonar (1989-97)

Kristján Guðmundsson píanóleikari starfrækti um tíma tríó sem þó virðist ekki hafa starfað alveg samfleytt. Fyrst er þess getið 1989 og 90 en Kristján bjó þá líklegast á Akureyri og starfrækti tríóið þar, engar upplýsingar finnast um aðra meðlimi þeirrar útgáfu. 1994 til 97 virðist Kristján vera með tríó á höfuðborgarsvæðinu og a.m.k. um tíma…

Tríó Jóns Leifssonar – Efni á plötum

Tríó Jóns Leifssonar – …komdu í byssó Útgefandi: Geimsteinn Útgáfunúmer: GSCD 165 Ár: 1995 1. Stuð 2. Hver er galdurinn 3. Frjáls 4. Far away 5. Húsið 6. Oh darling 7. I´m down 8. Halleluja 9. Roll over Beethoven 10. Derrick 11. Game of love 12. Come on let´s go 13. La Bamba 14. Letter…

Tríó Jóns Leifssonar (1985-)

Tríó Jóns Leifssonar á rætur sínar að rekja í Kópavoginn um miðjan níunda áratug síðustu aldar en sveitin hefur aldrei hætt formlega, kemur einstöku sinnum saman og telst því vera starfandi. Þrátt fyrir nafnið er ekki um tríó að ræða, og hvorki hefur sveitin meðlim innanborðs sem ber nafnið Jón Leifsson né nokkra tengingu við…

Tríó Jóns Árnasonar (1954)

Harmonikkuleikarinn Jón Árnason frá Syðri-Á í Ólafsfirði starfrækti tríó í eigin nafni á sjötta áratug síðustu aldar að minnsta kosti. Árið 1954 myndaði hann tríó sem auk hans skipuðu bróðir hans, Helgi S. Árnason harmonikku- og gítarleikari, og Ásgeir H. Jónsson trommuleikari.

Tríó Jennýjar (1993)

Jenný Gunnarsdóttir djasssöngkona starfrækti sumarið 1993 Tríó Jennýjar en auk hennar voru í tríóinu Arnold Ludwig bassaleikari og Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari. Tríó Jennýjar virðist hafa verið skammlíft.

Tríó Jemma (1991)

Tríó Jemma var starfandi 1991 og spilaði líklega pönk. Engar upplýsingar finnast um meðlimi þessarar sveitar og upplýsingar óskast þ.a.l. um hana.

Tríó Kristjáns Eldjárn (1996)

Gítarleikarinn Kristján Eldjárn starfrækti um skamman tíma djasstríó haustið 1996, sem m.a. kom fram á RÚREK djasshátíðinni. Auk Kristjáns voru í tríói hans, þeir Róbert Þórhallsson bassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari. Tónlist þeirra var skilgreind sem eins konar nútíma gítardjass en þeir félagar léku inni á milli frumsamið efni.

Tríó Kára Kristinssonar (1980)

Tríó Kára Kristinssonar starfaði í fáeina mánuði á Stöðvarfirði árið 1980. Sveitin, sem gerði út á sveitaböll í heimahéraði, var sett á laggirnar í ársbyrjun 1980 til að anna þorrablótaeftirspurn og starfaði hún að öllum líkindum fram á haustið. Meðlimir Tríós Kára Kristinssonar voru Kári Kristinsson trommuleikari og hljómsveitarstjóri, Garðar Harðarson söngvari, bassa- og hljómborðsleikari…

Tríó Jóns Páls Bjarnasonar – Efni á plötum

Elly Vilhjálms – 79 af stöðinni Útgefandi: Hljóðfæraverslun Sigríðar Helgadóttur Útgáfunúmer: HSH 45 – 1014 Ár: 1962 1. Sjötíu og níu af stöðinni (Vegir liggja til allra átta) 2. Lítill fugl Flytjendur: Elly Vilhjálms – söngur hljómsveit undir stjórn Jóns Sigurðssonar: – Jón Sigurðsson – bassi – Guðmundur Steingrímsson – trommur – Þórarinn Ólafsson –…

Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (1959-2010)

Gítarleikarinn Jón Páll Bjarnason starfrækti oft og iðulega djasstríó á meðan hann bjó hér á landi en hann bjó lengi erlendis, í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Fyrst er tríóa getið í hans nafni á árunum í kringum 1960, í því voru auk hans Gunnar Ormslev tenór-saxófónleikari og Sigurbjörn Ingþórsson bassaleikari. Það tríó er líklega það þekktasta…

Harmonikutríó Jóns Sigurðssonar (1958 / 1969)

Heimildir finnast um tríó kennd við Jón Sigurðsson og er að öllum líkindum um að ræða Jón Sigurðsson bankamann svokallaðan en hann lék á harmonikku. Harmonikutríó Jóns Sigurðssonar lék inn á plötu árið 1958 en sú skífa var fjögurra laga og skiptist milli þeirrar sveitar og Harmonikutríós Jan Morávek. Engar upplýsingar er að finna um…

Tríó Jóns Möller (?)

Píanóleikarinn Jón Möller starfrækti í gegnum tíðina nokkur djasstríó í sínu nafni en í öllum tilfellum var um að ræða skammlífar sveitir og á löngu tímabili. Það er fyrst árið 1959, þegar Jón var aðeins tvítugur, sem tríó í hans nafni kemur til sögunnar en svo ekki fyrr en 1977, engar upplýsingar er að hafa…

Tríó Kristjáns Jónssonar (1970)

Tríó Kristjáns Jónssonar lék um tíma í Blómasal Hótel Loftleiða árið 1970. Engar frekari upplýsingar er að finna um þessa sveit, hverjir skipuðu hana auk Kristjáns en hér er giskað á að um sé að ræða Kristján Jónsson trompetleikara. Nánari upplýsingar óskast um þetta tríó.

Látum sönginn hljóma

Látum sönginn hljóma Lag / texti: Geirmundur Valtýsson / Hjálmar Jónsson Til er á jörðu mál sem tengir þjóð við þjóð, þögn og múrar hindra ekki tónaflóð. Það skiptir engu hvaðan berast lög og ljóð, við söngva metum, sungið getum og saman fetum nýja slóð. Tökum nú lagið, nýtum nóttina og daginn, nú er lag…

Afmælisbörn 13. mars 2018

Fjögur afmælisbörn koma við sögu á Glatkistunni í dag: (Þórir) Karl Geirmundsson gítarleikari frá Ísafirði er sjötíu og níu ára en hann lék í BG & Ingibjörgu með bróður sínum Baldri Geirmundssyni, en sú sveit gekk reyndar undir ýmsum nöfnum. Einnig lék Karl á sínum tíma með Hljómsveit Vilbergs Vilbergssonar (Villa Valla), Hljómsveit Björns R.…

Afmælisbörn 12. mars 2018

Á þessum degi er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Hjördís Elín Lárusdóttir (Dísella) söngkona, hljómborðs- og trompetleikari er fjörutíu og eins árs gömul í dag. Hún er ein Þriggja systra, dóttir Lárusar Sveinssonar trompetleikara og hefur komið víða við sögu í tónleikahaldi og plötuútgáfu. Hún gaf t.d. út plötuna Solo noi árið 2007, söng…

Afmælisbörn 11. mars 2018

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni Þuríður Pálsdóttir óperusöngkona og ein þekktasta söngkona íslenskrar tónlistarsögu er níutíu og eins árs gömul í dag. Þuríður er dóttir Páls Ísólfssonar, lærði söng hér heima og síðan á Ítalíu og þar reis hennar söngferill einna hæst þótt hún hefði alltaf sungið hér heima…

Afmælisbörn 10. mars 2018

Á þessum annars ágæta degi koma fyrir fjögur afmælisbörn á lista Glatkistunnar Hanna Valdís Guðmundsdóttir söngkona var ein af fyrstu barnastjörnunum og enn í dag heyrist reglulega lag hennar um Línu Langsokk, auk annarra. Hún var einnig ein af stúlkunum sem prýddi Sólskinskórinn og söng lagið Sól sól skín á mig, sem margir þekkja. Hanna…

Afmælisbörn 9. mars 2018

Tvö afmælisbörn úr tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni Símon H. Ívarsson gítarleikari og kórstjórnandi er sextíu og sjö ára gamall. Hann er kunnur gítarleikari, nam gítarleik og tónlistarkennarafræði hér heima auk þess að fara í framhaldsnám í Austurríki. Þrjár plötur hafa komið út með gítarleik hans, sú síðasta 2004. Símon var formaður…

Afmælisbörn 8. mars 2018

Tvö tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru í gagnabanka Glatkistunnar Karl Hermannsson söngvari úr Keflavík er sjötíu og þriggja ára gamall á þessum degi en hann fæddist 1945. Fyrsta hljómsveit hans mun líklega hafa verið Skuggar en einnig var hann söngvari um tíma í Hljómum. Söngferil sinn lagði Karl að mestu á hilluna en…

Tríó Gunnars Reynis Sveinssonar (1956)

Gunnar Reynir Sveinsson víbrafónleikari og tónskáld mun hafa hætt í KK sextettnum árið 1956 til að stofna tríó í eigin nafni sem gekk ýmist undir nafninu Tríó Gunnars Reynis Sveinssonar eða Tríó Gunna Sveins. Tríóið varð líklega ekki langlíft en náði þó að leika fjögur lög inn á tvær plötur með Hauki Morthens, þekktast þeirra…

Tríó Guðmundar Steinssonar (1968)

Afar takmarkaðar heimildir er að finna um Tríó Guðmundar Steinssonar sem starfaði haustið 1968, hverjir skipuðu tríóið með honum eða hvers konar tónlist það lék. Guðmundur lék líklega sjálfur á trommur. Anna Vilhjálms söng eitthvað með Tríói Guðmundar Steinssonar en aðrar upplýsingar um sveitina væru vel þegnar.

Tríó Guðmundar Steingrímssonar (1992-2005)

Guðmundur Steingrímsson (Papa Jazz) starfrækti djasstríó með hléum á árunum 1992 til 2005. Litlar upplýsingar er að finna um hverjir skipuðu tríóið með honum enda hefur það sjálfsagt verið nokkuð mismunandi, þó liggur fyrir að Carl Möller píanóleikari lék með því 1993. Ýmsir kunnir söngvarar hafa sungið með tríóinu og eru Linda Walker, Andrea Gylfadóttir,…

Tríó Gunnars Sigurgeirssonar (1934-35)

Tríó Gunnars Sigurgeirssonar spilaði á samkomum í Eyjafirði árin 1934 og 35 og var því að öllum líkindum ættað þaðan. Engar frekari upplýsingar finnast um þetta tríó, hljóðfæraskipan þess eða meðlimi en ekki er ólíklegt að um einhvers konar harmonikkusveit hafi verið um ræða.