Hljómsveit alþýðunnar (um 1975-78)

Óskað er eftir upplýsingum um hljómsveit eða tónlistarhóp sem starfaði innan alþýðubandalagsins á Akureyri á áttunda áratug síðustu aldar undir heitinu Hljómsveit alþýðunnar. Hópurinn hafði komið fram á árshátíð alþýðubandalagsins fyrir eða um miðjan áttunda áratuginn og verið mjög fjölmennur, flutt tónlistaratriði þar væntanlega með söng og hljóðfæraleik.

Til stóð að sveitin kæmi fram aftur á árshátíð alþýðubandalagsins snemma árs 1978 sem og líklega varð en ári síðar kom fram sveit sem nefndist Kvartett alþýðunnar og var eins konar afsprengi Hljómsveitar alþýðunnar.