Hommagormar og hippar í handbremsu (1989-90)

Á Húsavík starfaði í kringum 1990 rokksveit sem bar nafnið það sérstæða heiti Hommagormar og hippar í handbremsu en um það leyti stóð yfir nokkuð öflug pönkrokkvakning ungs tónlistarfólks fyrir norðan með heilmiklu tónleikahaldi á Akureyri og Húsavík sem leiddi af sér fjölda hljómsveita og kynslóð sem hefur síðan verið áberandi í íslenskri tónlist.

Hommagormar og hippar í handbremsu starfaði að minnsta kosti á árunum 1989 og 90 en einhverjir meðlimir sveitarinnar starfræktu fleiri hljómsveitir á sama tíma svo gróskan var mikil, meðlimir sveitarinnar voru Ármann Guðmundsson, Arnar Már [?], Stefán [?] og Hjalli [?] en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um nöfn þeirra eða hljóðfæraskipan og er því óskað eftir þeim.