Afmælisbörn 5. júlí 2016

Axel Flóvent

Axel Flóvent

Hvorki fleiri né færri en sex afmælisbörn er að finna í Glatkistunni í dag:

Kristín Lilliendahl söngkona er sextíu og eins árs gömul í dag. Kristín vakti upphaflega athygli í hljómsveitinni Formúla ´71 en síðar var hún annar Söngfuglanna sem gaf út barnaplötu um miðjan áttunda áratuginn og lagið Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, naut á sínum mikilla vinsælda. Í kjölfarið kom út jólaplata með Kristínu. Margir þekkja líka lagið Breytir borg um svip sem hún söng áratug síðar með Vísnavinum. Kristín er móðir Gretu Salóme Eurovisionstjörnu.

Valdimar Örn Flygenring tónlistarmaður og leikari er fimmtíu og sjö ára. Hann gaf út plötuna Kettlingar, með hljómsveitinni Hendes verden sem hann starfrækti á sínum tíma en hann hefur verið í mörgum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna Menn, Hina konunglegu flugeldarokksveit, Ekki, Tjúttlinga, Ómar og Valda, Óreglu og Hráefni.

Akureyska barnastjarnan Harpa Gunnarsdóttir er fimmtíu og eins árs á þessum degi. Hennar söngferill spannaði ekki langan tíma en út kom fjögurra laga plata með henni á vegum Tónaútgáfunnar á Akureyri þegar hún var aðeins níu ára gömul. Hún söng lítillega opinberlega eftir útgáfu plötunnar en síðan hefur lítið spurst til Hörpu.

Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari er einnig fimmtíu og eins árs. Hann nam söng fyrst hjá Sigurði Demetz en síðar í Bretlandi og Þýskalandi en þar starfaði hann lengi sem og í Frakklandi. Aukinheldur hefur hann sungið ýmis óperu- og sönghlutverk víða um heim sem og hér heima. Út hafa komið plötur með Gunnari hér heima en hann hefur einnig sungið sem gestur á plötum annarra listamanna og á viðburðum eins og Frostrósatónleikum o.þ.h.

Axel Flóvent (Daðason) tónlistarmaður frá Húsavík er tuttugu og eins árs gamall í dag. Axel hefur vakið athygli fyrir tónlist sína undanfarið og kom m.a. annars fram á síðustu Iceland Airwaves hátíð en hann hefur einnig keppt í Músíktilraunum með hljómsveitum eins og For colorblind people og Functional foundation auk þess að keppa þar sem einstaklingur.

Jón Stefánsson kórstjóri og organisti hefði ennfremur átt afmæli á þessum degi en hann stýrði Kór Langholtskirkju í ríflega hálfa öld, frá átján ára aldri. Jón stjórnaði einnig Graduale Nobili, Kammerkór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju auk nokkurra annarra kóra. Tónlistarferill Jóns hófst þó á allt öðrum stað en þá var hann gítarleikari í þjóðlagatríói sem bar heitið Hryntríóið. Jón hefði orðið sjötugur í dag.