Afmælisbörn 25. júlí 2016

Prins Valium Þorsteinn Ólafsson

Þorsteinn Ólafsson

Í dag eru afmælisbörnin þrjú í Glatkistunni:

Þorsteinn Konráð Ólafsson raftónlistarmaður, sem gengur undir nafninu Prins Valium í tónlistarsköpun sinni er fjörutíu og eins árs gamall í dag. Prins Valium hefur komið við sögu á mörgum safnplötum í rafgeiranum sem og splitplötum en hann hefur einnig gefið út plötur sjálfur síðan 2006. Hann var einnig í hljómsveitinni Semen, sem ekki fór hátt.

Páll Ragnar Pálsson gítarleikari og tónskáld er þrjátíu og níu ára gamall. Páll vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Maus sem sigraði Músíktilraunir vorið 1994, sveitin fór á heilmikið flug í kjölfarið og gaf út nokkrar plötur. Hann hafði lært bæði á gítar og píanó, en nam einnig raftónlist, tónfræði og tónlistarsögur áður hann lauk tónsmíðanámi. Páll hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir tónverk sín síðustu árin.

Annar gítarleikari, Stefnir Gunnarsson á einnig afmæli á þessum degi en hann er þrítugur og telst því eiga stórafmæli. Stefnir hefur leikið á gítar og sungið í hljómsveitum eins og Lada Sport og Big Kahuna en einnig fengist eitthvað við upptökur.