Afmælisbörn 3. apríl 2023

Silli Geirdal

Glatkistan hefur upplýsingar um eitt afmælisbarn í dag:

Silli Geirdal (Sigurður Geirdal Ragnarsson) bassaleikari fagnar stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Silli hefur frá árinu 2004 verið þekktastur fyrir að starfa með sveit sinni Dimmu en hann hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Sign og Stripshow, færri vita að á bernskuárum sínum myndaði hann dúettinn Black diamond ásamt Geir Ólafssyni. Silli hefur aukinheldur starfað við upptökur.

Vissir þú að Sveinn Rúnar Sigurðsson höfundur Eurovision-framlagsins Heaven (2004) er systursonur Sverris Stormskers höfundar Eurovision-framlagsins Sókrates (1988)?