Afmælisbörn 4. apríl 2023

Guðmundur Haukur Þórðarson

Afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi:

Friðrik Guðjón Sturluson bassaleikari frá Búðardal er fimmtíu og átta ára gamall á þessum degi. Friðrik hafði leikið með ýmsum hljómsveitum s.s. Hendingu, Suðvestan hvassviðri og Mao áður en leið hans lá í Sálina hans Jóns míns en með þeirri sveit hefur hann gert garðinn hvað frægastan síðan. Friðrik hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Fríðu sársauka, Pláhnetunni og Ullarhöttunum þegar Sálin hefur verið í fríum en hann hefur einnig leikið á plötum annarra listamanna s.s. Eyjólfs Kristjánssonar, Herberts Guðmundssonar, Jóns Ólafssonar, Fabúlu og margra annarra. Friðrik hefur ennfremur komið að tónlist með öðrum hætti í formi upptaka, hljóðvinnslu ýmis konar og útgáfu auk þess að semja fjöldann allan af lögum og textum sem allir þekkja.

Þá á (Guðmundur) Haukur Þórðarson níutíu og þriggja ára afmæli í dag. Haukur var einn þeirra er skipuðu Keflavíkurkvartettinn á sínum tíma en hann hefur jafnframt sungið með Karlakórnum Þröstum og Karlakór Keflavíkur en hann var einn af stofnendum síðarnefnda kórsins. Haukur sendi svo á áttatíu og fimm ára afmælinu frá sér plötu sem bar titilinn Ég lít í anda liðna tíð, þar sem finna má upptökur frá ýmsum tímum með honum.

Vissir þú að hljómsveitin Oxsmá var undanfari Langa Sela og skugganna?