Afmælisbörn 10. desember 2023

Theódór Árnason

Nokkur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:

Einar Hólm Ólafsson söngvari og trymbill (1945-2023) átti afmæli á þessum degi en hann lést fyrr á þessu ári. Einar söng inn á eina litla plötu 1973 en hann var trommuleikari í mörgum hljómsveitum hér áður s.s. Pónik, Stuðlatríóinu, Næturgölum og Hljómsveit Ólafs Gauks svo einhverjar séu nefndar. Einar er faðir Ólafs Hólm trommara Nýdanskrar og margir trommuleikarar eru í ætt hans.

Alexandra Rós Norðkvist trommu-, gítar- og trompetleikari er tuttugu og fjögurra ára gömul í dag en hún vakti mikla athygli í Músíktilraunum 2021 þegar hún var þar valin besti trommuleikari keppninnar. Í Músíktilraununum keppti hún með þremur hljómsveitum, The Parasols (áður Parasol), Salamöndru og Æsu, hún hefur jafnframt starfað við tónlistarkennslu.

Einnig hefði Steingrímur Johnsen söngvari og söngkennari (1846-1901) átt afmæli þennan dag en hann var einna fyrstur til að kenna söng hérlendis. Steingrímur var ennfremur stofnandi og stjórnandi fjölmargra kóra á árum áður.

Óskar Ingólfsson klarinettuleikari (1954-2009) átti einnig þennan afmælisdag. Óskar lék á klarinettu með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að starfa í stóru leikhúsunum, við óperuna og víðar. Hann starfaði um tíma sem deildarstjóri tónlistarsviðs Ríkisútvarpsins, sinnti ennfremur ýmsum félagsstörfum fyrir tónlistarhreyfinguna o.m.fl.

Að síðustu er hér nefndur Theódór Árnason fiðluleikari (1889-1952) sem fæddist þennan dag. Hann hafði að mestu verið sjálfmenntaður í list sinni hér heima en flutti síðan til Kanada þar sem hann lærði frekar á hljóðfærið og kenndi sjálfur á það. Theódór kom síðar heim til Íslands þar sem hann stjórnaði kórum, kenndi á hljóðfæri og ritaði bækur m.a. um tónlist.

Vissir þú að Elíza Newman gaf út sína fyrstu smáskífa árið 2003?