Hellix (?)

Óskað er eftir upplýsingum um hljómsveit sem einhvern tímann var starfrækt á Siglufirði undir nafninu Hellix. Engar upplýsingar er að finna um þessa sveit aðrar en að um var að ræða unglingasveit sem starfaði einhvern tímann eftir 1980, hvenær nákvæmlega liggur ekki fyrir.

Hér er óskað eftir upplýsingum um meðlimi sveitarinnar, hljóðfæraskipan, starfstíma hennar og annað sem við á.