
Hljómsveit Siggu Beinteins 1987
Í nokkur skipti hafa hljómsveitir starfað í nafni Sigríðar Beinteinsdóttur söngkonu, stundum hefur það verið í formi tímabundinna eða stakra verkefna en einnig til lengri tíma – engar þessar hljómsveitir hafa þó sent frá sér efni til útgáfu eða útvarpsspilunar.
Fyrsta Hljómsveit Siggu Beinteins (eða Hljómsveit Sigríðar Beinteinsdóttur) var sett saman vorið 1987 til að leika um helgar um sumarið á skemmtistaðnum Broadway í Mjóddinni í Reykjavík en sá skemmtistaður naut þá vinsælda. Sigríður hafði þá skapað sér nafn sem söngkona hljómsveitarinnar Kikk, sungið á móti Björgvini Halldórssyni í lagi með HLH-flokknum og svo í tónlistarsýningunni Allt vitlaust á Broadway. Þetta var þó frumraun hennar sem söngkona sveitar í eigin nafni og sér til fulltingis hafði hún einvala lið hljóðfæraleikara sem voru Guðmundur Jónsson gítarleikari sem hafði starfað með henni í Kikk, Magnús Stefánsson trommuleikari, Birgir Bragason bassaleikari og Edda Borg hljómborðsleikari og söngkona. Sveitin lék eingöngu á Broadway um sumarið þó með einni undantekningu, að hún kom fram á útitónleikum á Lækjartorgi. Þessi sveit starfaði líklega fram á haustið og hætti þá störfum en virðist hafa komið saman vorið eftir (1988) þegar hún lék í Keflavík.

Hljómsveit Siggu Beinteins 1994
Ný hljómsveit Siggu Beinteins leit dagsins ljós í upphafi árs 1994 en Stjórnin, sem Sigga hafði þá starfað með ásamt Grétari Örvarssyni og fleirum og gert garðinn frægan m.a. í Júgóslavíu sem fulltrúar Íslands í Eurovision, var um það leyti að hætta störfum. Sigríður ákvað að stofna nýja sveit og hafði reyndar með sér tvo úr Stjórninni í hana, Friðrik Karlsson gítarleikara og Halldór Gunnlaug Hauksson trommuleikara, aðrir meðlimir hljómsveitarinnar voru þeir Guðmundur Jónsson gítarleikari, Þórður Guðmundsson bassaleikari og Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari. Strax í upphafi höfðu línurnar verið lagðar, sveitin myndi leika á Hótel Íslandi til vorsins í tengslum við sýningu sem Sumargleðin var með þar en svo myndi Eyþór yfirgefa sveitina og hún taka upp nýtt nafn í kjölfarið. Þannig gekk planið fyrir sig og þegar sveitin hætti störfum um vorið 1994 yfirgaf Eyþór sveitina og starfaði hún svo um sumarið undir nafninu N1+, og sendi frá sér tvö lög undir því nafni á safnplötu.
Ríflega áratugur leið þar til næsta Hljómsveit Siggu Beinteins tók til starfa en hún virðist hafa verið sett saman til að sinna ákveðnum verkefnum eins og títt hefur verið í kringum þekktustu söngvara níunda og tíunda áratugarins í seinni tíð. Sveitin lék þannig á bæjarhátíðum í Súðavík sumarið 2007 og svo á Vopnafirði og Ólafsfirði sumarið eftir (2008), engar upplýsingar er að finna um hverjir skipuðu sveit Sigríðar í þau skipti eða hvort sveitin lék á fleiri uppákomum um það leyti.
Sigríður hefur um langt árabil staðið fyrir jólatónleikum og haft hljómsveitir þar með sér þar, litlar sem engar upplýsingar er hins vegar að finna um meðlimi og hljóðfæraskipan þeirra sveita.














































