
Skólahljómsveit Austurbæjarskóla 1950
Sverrir Garðarsson var fyrst og fremst kunnur fyrir aðkomu sína að félags- og réttindamálum tónlistarmanna, m.a. sem formaður FÍH en hann var einnig lengi starfandi tónlistarmaður og starfrækti hljómsveitir í eigin nafni einkum áður en félagsstörfin tóku yfir.
Fyrsta hljómsveit Sverris var í raun skólahljómsveit í gagnfræðideild Austurbæjarskólans þar sem hann var við nám en það mun hafa verið um eða jafnvel fyrir fermingu (líklega 1947 eða 48) sem hann stjórnaði sveitinni, með honum í þeirri sveit voru Birgir Ísleifur Gunnarsson (síðar borgarstjóri og ráðherra) sem lék líkast til á píanó og Matthías Karelsson harmonikkuleikari, sjálfur lék Sverrir á trommur. Síðar léku í þessari sveit Andrés Ingólfsson klarinettuleikari, Sigurður H. Guðmundsson harmonikkuleikari og Hörður Magnússon [?].
Árið 1950 var hljómsveit Sverris farin að leika utan skólans en hann var þá aðeins fimmtán ára gamall. Á næstu árum fór sú sveit víða um landsbyggðina yfir sumartímann en liðsmenn hennar voru hinir og þessir – fyrsta útgáfan var ásamt Sverri líklega skipuð þeim Ásgeiri Sigurðssyni klarinettuleikara, Hrafni Pálssyni píanóleikara og Ólafi Stephensen harmonikkuleikara sem voru að koma úr Miðbæjarskólanum en síðan voru liðsmenn sveitarinnar þeir Þórður Finnbjörnsson, áðurnefndur Andrés Ingólfsson klarinettuleikari, Bragi Hlíðberg harmonikkuleikari og Ragnar Bjarnason sem þá var farinn að syngja en hafði fram að því aðallega leikið á trommur, Sverrir var þá sjálfur trommuleikari sem fyrr segir. Einnig mun Torfi Bjarni Tómasson hafa sungið með sveitinni um tíma.

Sverrir Garðarsson og félagar á Hótel Norðurlandi vorið 1954
Veturinn 1953-54 starfaði Sverrir á Hótel Kea á Akureyri með Tríói Árna Elfar en um vorið fór hann svo aftur norður ásamt útskriftarbekk Verzlunarskóla Íslands þar sem vinur hans Ólafur Stephensen var að útskrifast og léku þeir félagar ásamt Hrafni Pálssyni á dansleikjum fyrir norðan í nafni Sverris, og meðal annars á Hótel Norðurlandi þar sem þeir Hjörleifur Björnsson gítarleikari og Ingvar Níelsson bassaleikari léku með þeim félögum en þeir voru líklega liðsmenn hljómsveitar Hótels Norðurlands. Hjörleifur lék svo með hljómsveit Sverris um sumarið, fyrst í Þórscafe og síðan á Röðli en aðrir liðsmenn þeirrar sveitar voru Árni Elfar á píanó og Gunnar Ormslev tenór saxófónleikari.
Veturinn 1954-55 starfaði Hljómsveit Sverris Garðarssonar á Keflavíkurflugvelli hjá bandaríska hernum en meðlimir þeirrar sveitar voru Guðmundur Finnbjörnsson fiðlu- og saxófónleikari, Guðni S. Guðnason harmonikkuleikari, Trausti Thorberg gítarleikari, Hrafn Pálsson bassaleikari [?] og Sverrir trommuleikari.

Hljómsveit Sverris Garðarssonar á Röðli 1954
Næsta sumar (1955) léku þeir um tíma í Þórscafe og Röðli áður en þeir fóru í sumartúr um landsbyggðina, Haukur Morthens hafði sungið með þeim félögum í bænum en Ragnar Bjarnason söng með sveitinni um sumarið – þá var Bragi Hlíðberg harmonikkuleikari einnig í sveitinni en ekki liggja fyrir upplýsingar um aðra meðlimi sveitarinnar þá. Sveit Sverrir virðist hafa hætt störfum síðsumars 1955.
Síðsumars 1961 birtist Hljómsveit Sverris Garðarssonar á nýjan leik en hún lék þá í nokkrar vikur í Lídó með dönsku söngkonunni Inge Östergård, í framhaldinu var sveitin svo ráðin til að leika fyrir dansi í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll en þar var Sigurdór Sigurdórsson söngvari hennar. Meðlimir sveitairnnar voru þá Sverrir á trommur, Sigurbjörn Ingólfsson á bassa, Jón Möller á píanó, Reynir Sigurðsson víbrafón- og harmonikkuleikari og Viðar Alfreðsson trompetleikari. Þeir félagar léku einnig á revíusýningum í Sjálfstæðishúsinu um veturinn sem og á miðnæturtónleikum í Austurbæjarbíói um haustið ásamt fleiri sveitum en slíkir tónleikar tónleikar voru algengir á þessum tíma, og á 30 ára afmælistónleikum FÍH í febrúar 1962. Sveitin starfaði fram á vorið í Sjálfstæðishúsinu og undir lokin virðist sem Rúnar Georgsson saxófónleikari hafi stundum komið fram með sveitinni en aðrir liðsmenn hennar voru Sverrir, Reynir, Sveinn Gústafsson píanóleikari og Edwin Kaaber gítarleikari undir lokin. Sigurdór söng áfram með sveitinni en einnig kom söngkonan Kristjana Magnúsdóttir fram með henni um tíma.

Hljómsveit Sverris Garðarssonar 1961
Sveitin hætti sem fyrr segir í Sjálfstæðishúsinu um vorið 1962 en kom fram aftur síðsumars í Glaumbæ ásamt söngkonunni Guðrúnu Fredriksen, og svo lítillega á Hótel Borg – ekki er ólíklegt að sveitin hafi farið á sveitaballamiðin um sumarið en upplýsingar er ekki að finna um það.
Sveitin hætti því endanlega störfum um haustið 1962 en nokkrum árum síðar (1968-73) starfrækti Sverrir tríó á Hótel Loftleiðum sem fjallað er um annars staðar á Glatkistunni, Sverrir var á þeim árum kominn á fullt í félagsmálin og dansleikjaspil var því á undanhaldi.














































