
Anya Hrund Shaddock
Í dag eru sex afmælisbörn tengd íslenskri tónlist á lista Glatkistunnar, þau eru eftirfarandi:
Erdna (Ragnheiður) Varðardóttir söngkona er fimmtíu og eins árs gömul í dag. Hún hefur einkum sérhæft sig í trúarlegri og gospeltónlist, sungið til að mynda með Gospelkór Fíladelfíu en einnig hefur komið út jólaplata með henni.
Óskar Guðjónsson saxófónleikari er einnig fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Óskar hefur starfrækt og leikið með fjölda sveita sem margar eru djass- og fönktengdar og má þar nefna ADHD, Dýrin í Hálsaskógi, Jagúar, Astral sextett og Delerað en hann hefur jafnframt leikið sem session leikari á ógrynni útgefinna platna auk þess sem hann á nokkrar sólóplötur að baki og í félagi við aðra.
Einar (Einarsson) Markan baritónsöngvari (f. 1902) átti einnig afmæli þennan dag en hann var bróðir Maríu og Sigurðar Markan sem einnig voru þekkt söngfólk. Fjölmargar 78 snúninga plötur komu út með söng Einars á þriðja áratug síðustu aldar, einnig þar sem hann söng ásamt Maríu systur sinni og Eggert Stefánssyni. Einar lést 1973.
Anya Hrund Shaddock frá Fáskrúðsfirði fagnar tuttugu og þriggja ára afmæli sínu á þessum degi. Anya Hrund sigraði Samfés árið 2017 og Nótuna sama ár, og hefur frá árinu 2022 sent frá sér nokkrar smáskífur og breiðskífu einnig með efni sem hún hefur samið, útsett, spilað og sungið sjálf.
Gissur Ingi Geirsson eða Gissur Geirs eins og hann var iðulega nefndur var einn af eftirminnilegri sveitaballakóngum Suðurlands hér á árum áður. Gissur (f. 1939) sem spilaði á hljómborð, harmonikku og saxófón starfrækti fjölmargar sveitir, Hljómsveit Gissurar Geirs, Caroll quintet, Tónabræður og Glæsir voru meðal sveita hans og oft sungu systur hans, Úlfhildur og Hjördís Geirs í þeim sveitum. Gissur lést 1996.
Að síðustu er hér nefndur bassaleikarinn Sigurbjörn Ingþórsson eða Bjössi bassi eins og hann var kallaður. Sigurbjörn sem var fæddur 1934 lék með ýmsum danshljómsveitum s.s. Hljómsveit Óskars Guðmundssonar á Selfossi, Tríó Árna Elfar, Hljómsveit Svavars Gests, KK sextett og mörgum öðrum en hann lék einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil. Sigurbjörn lést árið 1986.
Vissir þú að Högni Egilsson og Snorri Helgason voru saman í hljómsveitinni Saab á sínum yngri árum?


