
Gunnar Þór Eggertsson
Afmælisbörn Glatkistunnar eru sjö að þessu sinni:
Skáldkonan Didda eða bara Sigurlaug Jónsdóttir fagnar sextíu og eins árs afmæli á þessum degi. Segja má að hún hafi fyrst vakið athygli fyrir textann við lagið Ó Reykjavík með Vonbrigðum sem var upphafslag kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík en textar hennar hafa birst víðar. Hún gaf á sínum tíma út plötuna Strokið & slegið en hefur einnig verið í hljómsveitunum Slagverki, Englaryki og Minä Rakastan Sinua en síðast talda sveitin gaf út plötu.
Gunnar Þór Eggertsson gítarleikari fagnar fimmtíu og tveggja ára afmæli í dag, hann er þekktastur fyrir veru sína í hljómsveitinni Landi og sonum en hann hefur einnig verið gítarleikari Vina vorra og blóma, Busabandsins, Ðe senjórita swingband, Musical nature, Næsland og fleiri sveita á sínum tíma.
Píanó- og básúnuleikarinn Jón Möller átti afmæli á þessum degi. Jón (fæddur 1939) lék með fjölda hljómsveita sem margar hverjar voru í djassgeiranum, hér má nefna m.a. sveitir eins og Tonik kvartett, Hljómsveit Hauks Morthens, Hljómsveit Guðjóns Matthíassonar, Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar, Duus-gengið, Bergmenn og Tríó Reynis Sigurðssonar en einnig starfrækti hann sveitir í eigin nafni. Jón lést árið 2019.
Ólafur Már Sigurðsson bassaleikari frá Vestmannaeyjum fagnar á þessum degi sjötíu og tveggja ára afmæli sínu. Ólafur Már hefur leikið með fjöldanum öllum af hljómsveitum í gegnum tíðina og meðal þeirra má nefna sveitir eins og Hounds, Takta, Valsbandið, Stemmu og Einsdæmi.
Haukur Nikulásson (1955-2011) hefði átt afmæli á þessum degi. Haukur kom að tónlist með ýmsum hætti, kom eitthvað fram sem trúbador og með skemmtara janframt stundum, en hann vann einnig og gaf út tónlist með karaoke útgáfum af íslenskri tónlist. Þá mun hann hafa starfað með hljómsveitum á yngri árum sínum.
Pétur Guðjohnsen tónlistarfrömuður hefði einnig átt afmæli en hann fæddist þennan dag árið 1812. Pétur stofnaði kór pilta við Latínuskólann í Reykjavík og var einnig organisti Dómkirkjunnar, hann átti einnig stærstan þátt í að fyrsta orgel landsins kom til landsins og var því að mörgu leyti frumkvöðull í íslensku tónlistarlífi um miðja nítjándu öldina. Pétur lést 1877.
Hér er að síðustu nefndur Geiri Sæm eða Ásgeir Magnús Sæmundsson en hann hefði átt afmæli á þessum degi. Geir Sæm (1964-2019) sendi frá sér þrjár sólóplötur og nokkra stórsmelli á borð við Froðuna, Er ást í tunglinu?, Sterann og Rauðan bíl á tónlistarferli sínum en einnig starfaði hann með hljómsveitum eins og Pax Vobis, Exodus, Frjóvgun og Fimm á Richter.














































