
Árni Grétar Jóhannesson
Níu afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Grímur Atlason tónlistarmaður og margt annað, er fimmtíu og fimm ára gamall á þessum degi. Grímur hefur starfað með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina, verið bassaleikari í sveitum eins og Drep, Dr. Gunni, Grjóthruni í Hólshreppi, Unun, Rosebud og Ekki þjóðinni og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves svo eitthvað sé nefnt.
Steingrímur Þórhallsson tónskáld, organisti og kórstjóri er fimmtíu og eins árs í dag, Steingrímur sem hefur einnig gengið undir nafninu Stein Thor, sigraði í alþjóðlegri dægurlagasamkeppni undir því nafni en hann hefur einnig starfað í sönghópnum Rinascente sem sérhæfði sig í tónlist frá endurreisnartímanum og SMS-tríóinu sem lagði áherslu á barrokk tónlist. Það kemur því nokkuð á óvart að Steingrímur var meðal þeirra sem skipuðu hljómsveitina Reggae in ice í upphafi.
Gítarleikarinn Guðmundur Pétursson fagnar í dag fimmtíu og þriggja ára afmæli, hann hefur verið landsþekktur síðan hann kom fram í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins vorið 1987 en hann var þá aðeins fimmtán ára. Síðan þá hefur hann leikið inn á tugi ef ekki hundruð platna og er meðal virtustu gítarleikara landsins, ekki síst í blúsgeiranum. Guðmundur hefur ennfremur gefið út nokkrar sólóplötur.
Tónlistarmaðurinn Kormákur Jarl Gunnarsson heldur í dag upp á þrítugs afmæli sitt sem er auðvitað stórafmæli. Kormákur er þekktur undir aukasjálfinu Flesh machine en hann hefur jafnframt starfrækt hljómsveit undir sama nafni, þá hefur hann einnig starfað undir nafninu Brilliantinus og starfað með hljómsveitinni Ryba.
Þá á Tryggvi Tryggvason (Jóhannsson) fyrrum hljóðvinnslumaður sem hefur starfað í Bretlandi mörg undanfarin ár, áttatíu og þriggja ára afmæli. Tryggvi sem reyndar er rafmagnsverkfræðingur, er fæddur á Íslandi en fluttist ungur til Bretlands, hann starfaði um tíma við upptökur hjá Decca fyrirtækinu en starfrækti eigin fyrirtæki í bransanum og vann til fjölda verðlauna og viðurkenninga í klassíska hluta fræðanna.

Tryggvi Tryggvason
Raftónlistarmaðurinn Árni Grétar Jóhannesson sem gekk undir nafninu Futuregrapher fæddist á þessum degi árið 1983. Árni Grétar vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Equal og síðar með Tab 22 en starfaði mestmegnis undir nafninu Futuregrapher og gaf út á annan tug smá- og breiðskífna undir því nafni. Hann starfrækti einnig útgáfufyrirtækin Tom tom records, Möller records og Móatún. Árni Grétar lést í byrjun árs 2025.
Njarðvíkingurinn Ástþór Óðinn Ólafsson rappari fagnar í dag fjörutíu og fjögurra ára afmæli sínu. Ástþór sem upphaflega kallaði sig Iceberg gaf út eina plötu undir því nafni en hefur síðan gefið út undir eigin nafni og í nafni tvíeyksins Tveir leikmenn auk þess sem hann hefur starfað með hip hop sveitinni Hugrofi.
Harmonikkuleikarinn Halldór Einarsson frá Kárastöðum átti afmæli á þessum degi. Halldór var fæddur árið 1913 og var kunnur harmonikkuleikari frá Kárastöðum í Grímsnesi, hann lék mikið á dansleikjum í Árnessýslu og víðar um Suðurlandið áður en hann flutti til Reykjavíkur en hann rak einnig hljómsveitir í eigin nafni. Hann lést árið 1981.
Að lokum er hér nefndur trúbadorinn Bjarni Tryggva frá Norðfirði sem á sextíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Bjarni vakti athygli á síðari hluta níunda áratugarins þegar hann sendi frá sér tvær sólóplötur en síðan varð bið á efni frá honum meðan hann m.a. flakkaði um Norðurlöndin til að spila. Þrjár plötur í viðbót hafa komið út með Bjarna en hann hefur búið erlendis síðustu árin.














































