Hjörtur Freyr Vigfússon (1971-)

Hjörtur Freyr Vigfússon

Tónlistarmaðurinn Hjörtur Freyr Vigfússon hefur komið víða við í íslenskri tónlist, leikið með fjölda hljómsveita og á að baki eina sólóplötu.

Hjörtur er fæddur 1971 og uppalinn á Kirkjubæjarklaustri en þar hófst hinn eiginlegi tónlistarferill hans. Fyrsta sveit hans var dúettinn Greifarnir sem hann starfrækti ásamt félaga sínum mjög ungur að árum, líklega um eða fyrir fermingu. Greifarnir urðu ekki langlífir en önnur sveit bar sama nafn nokkrum árum síðar og varð landsþekkt undir því. Í kjölfarið kom hljómsveitin Hope sem starfaði veturinn 1987-88 en þar var Hjörtur trommuleikari og söngvari, sú sveit lék mestmegnis á Klaustri og nágrenni en varð síðan að hljómsveitinni Volvo með breyttri liðsskipan. Í henni hafði Hjörtur fært sig yfir á gítar auk þess að syngja.

Næsta hljómsveit Hjartar, Væringjar var stofnuð upp úr Volvo og þar var hann áfram gítarleikari ásamt því að syngja, sem og í hljómsveitinni Hver sagði skál? en sú sveit starfaði innan Menntaskólans á Laugarvatni á árunum 1989-92 þar sem Hjörtur var við nám. Þótt sveitin væri að nafninu til skólahljómsveit við ML lék hún víða á dansleikjum um Suðurlandsundirlendið.

Næsta sveit Hjartar, Dægurlagakombóið var stofnuð árið 1994 og hefur leikið við ýmis tækifæri en var sjaldnast skipuð sömu meðlimum því í grunninn var þetta árshátíðarband sem var mannað eftir þörfum – sveitin er þannig séð enn starfandi en með hléum, oft löngum. Hjörtur var svo meðal þeirra sem skipuðu hljómsveitina Írafár í upphafi þegar hún var stofnuð 1998 en hann var þar ásláttarleikari og söng einnig með sveitinni fyrstu mánuðina en hann er einmitt eldri bróðir Vignis Snæs Vigfússonar gítarleikara hennar. Þá hefur Hjörtur einnig komið fram með árshátíðabandinu Vírus sem annar bróðir hans, Ólafur Fannar Vigfússon hefur starfrækt við góðan orðstír aukinheldur sem hann hefur starfað með ýmsum sönghópum, kórum og öðrum tónlistartengdum hópum.

Árið 2014 sendi Hjörtur frá sér sólóplötu undir nafninu Bronz en einnig hefur hann komið fram með hljómsveit undir því nafni ásamt bræðrum sínum Vigni Snæ og Ólafi Fannari en um er að ræða kántrítónlist. Upphaflega fór Hjörtur af stað með þetta verkefni árið 2000 þegar hann hljóðritaði eitt lag en þremur árum síðar hófust formlegar upptökur sem áttu eftir að standa með hléum allt til 2011 en þá kom afraksturinn út – tólf laga breiðskífa samnefnd sveitinni. Þannig varð sólóverkefnið að eins konar samstarfsverkefni með vel völdum gestum þar sem hann annast sönginn að mestu sjálfur en Sigurjón Brink og Alma Rut Kristjánsdóttir koma þar einnig við sögu. Upptökustjórn og hljóðfæraleikur var að mestu í höndum Vignis Snæs en þar koma einnig fram aðrir þekktir tónlistarmenn á borð við Róbert Þórhallsson bassaleikara, Ólaf Hólm trommuleikara og Þóri Úlfarsson hljómborðsleikara.

Hjörtur hefur síðan þá sent frá sér tvær smáskífur undir Bronz nafninu, Ég fann þig (2021) og Leiðumst hönd í hönd (2025). Síðustu árin hefur hann  jafnframt starfrækt hljómsveitina Rifrildi.

Efni á plötum