Gömul kona í bakhúsinu

Gömul kona í bakhúsinu (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Grasið gleymir þeim sem sáðu vori um bæinn og héldu af stað. Regnið telur sporin sem grasið í moldu felur og man ekki meir. Í áranna straumi þar þvoðum við æskuna burt og héldum vestur því það er einmitt þar sem sólin sest. [af plötunni Spilverk…

Veðurglöggur

Veðurglöggur (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Svífur yfir sænum að þrotum komið ský, snýtir sér í bænum. Kappklædd kona tekur eftir því hvað Jóni Sigurðssyni hljóti að vera kalt frakkalausum, vini lands og þjóðar húrrað sautjánfalt. Veðurglöggur rýnir, rekur görn, ranglar út í sortann. Biður lágt til guðanna um loftmyndir, norðurljós og hæga vestanátt. Það…

Við sendum heim (cif)

Við sendum heim (cif) (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Mín sála er föl fyrir sanngjarnt verð. Þú hringir, ég sendi heim. Hún er veidd fyrir vestan, lið fram af lið. Hann Hallgrímur afi er einn. Sumir standa sneyptir, skoða úrvalið. Grænum augum skotra utanveltu við. Ó guð hvað lyktin er góð en pyngjan er tóm.…

Styttur bæjarins

Styttur bæjarins (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Einn, tveir úr Vogunum fóru í götuskó, gengu þeir í honum víðs vegar en hins vegar voru þeir á höttunum eftir skósmiðnum. Þeir gengu Miklubraut og hittu Einar Ben, skáldið er alltaf í frakkanum aðhnepptum – hnésíðum. Einar er ein af styttum bæjarins sem enginn nennir að horfa…

Orðin tóm

Orðin tóm (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Ég bíð hér enn bakatil, borin von, tapað spil. Engin grið, nakin neyð, ekkert líf, engin leið. Skrýtið, undarlegt að bera á herðum sér drottinn, heilan her því hann sagði mér „því byrði, hún er mín“. En ég bíð ei meir, á nóg með mig, læt karlinn um…

Í klíkunni

Í klíkunni (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Prinsinn Póló lokkar mann inn á gildaskálann, bás númer fimm, þar hangir klíkan daginn út og inn. Vagninn Kaiser keisarans er á átta götum, ekur hann sér, hlær og segir: Sama er mér því ég er kavalier og rúntinn fer með elegans. Uppi‘ í holti ein í leyni…

Hún og verkarinn

Hún og verkarinn (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Hann elskar mig og ég er hans og lífið elskar oss. Við búum saman undir súð og berum sama kross. Ég er lygna í litlum læk og hann er feiminn foss, við syngjum saman hann og ég því lífið elskar oss. Lítið lag við ljóðaljóð sem skáldir…

Blóð af blóði

Blóð af blóði (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Blóð af blóði vot og hlý, veröld mín, ég lifi á ný. Brotabrot af heimsins sál, stjörnuhrap, nýtt tungumál. Gleðitár hins veglausa manns um ókomin ár. Hold af blóði morgunsól, blóð af holdi, tímans hjól. Jesús kristur kóngur klár á hverjum morgni í þúsund ár, dreypir hann…

Hvað á barnið að heita?

Hvað á barnið að heita? (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Vorið það læðist á laufgrænum skóm um heiminn á döggvotum skóm. Andar lífi, kveður þér ljóð sem skáldið forðum við lækjarins slóð. Veröldin vaknar, það fæddist í nótt boðberi lífsins í nótt. Krýndur til konungs af bæjarins frúm, krónu mánans, blaðberans rún.   [af plötunni…

Að hjálpast að

Að hjálpast að (Lag / texti: Spilverk þjóðanna) Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Heilagt stendur skrifað á blað. Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir, ein lítil býfluga afsannar það. Guð hjálpar þeim sem hjálpast að. Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Heilagt stendur skrifað á blað. Guð hjálpar þeim sem hjálpa…

Landsímalína

Landsímalína (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Það voru hjón á Vestfjörðum sem hétu Þorvaldur og Lína, áttu fyrir skuldunum og allt var í þessu fína. Valdi hann var skafari, Lína vann í pökkuninni, svo fengu bæði nóg af því, vildu‘ í burtu af mölinni. Ekki samt í sveitina, nei þau vildu beint…

Ljóð um ástina

Ljóð um ástina (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Ég er kærastan hans Einbjarnar með augu dýpri en stjörnurnar, á litinn eins og hafið blátt, rauð sem blóð um varirnar. Á gulum sokkum, grænum kjól, ég kem til hans á næturnar, læðist inn í væran blund, blaut í fæturnar. Einbjörn vaknar einmana, axlar…

Skelþunnur

Skelþunnur (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Skelþunnur í skýlinu við Hlemm á báðum áttum reykjandi ell emm, situr unglingurinn í skóginum með fyllingar í tönnunum á leiðinni heim úr sollinum. Ja hvað skal gera í henni Reykjavík, ein fimmtán vetra unglingstík sem hefur hvorki áhuga á íþróttum né nýjustu tækni og vísindum…

Á fleytifullu tungli

Á fleytifullu tungli (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Á fleytifullu tungli ég fæddist snemma í maí löngu eftir að flaug hann Gagarín upp í loftið bláa, síðan ólst ég upp, skorti hvorki járn og vítamín. Ég var eins og flestir, fékk rauða hunda og kvef og ekki pláss á barnaheimili. Við fluttum…

Sunnudagur

Sunnudagur (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson)   Gullfiskur í glerbúri, gítar undir rúmi, vekjarinn á hillunni er að verða tíu. Sunnudagur svefndrukkinn, pabbi og mamma timbruð, sonur þeirra á skálinni er að drepa tímann. Æ sunnudagur, bíltúr upp í sveit, ævintýri ömmu eru löngu liðin undir lok. Kisa frammi í eldhúsi, Lína…

Valdi skafari

Valdi skafari (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Valdi er í heflinum, úlpunni og treflinum, ekki beint í skýjunum yfir takinu í bakinu. Krossbölvar í takt við Gibb-bræðurna í gufuradíóinu. Hann hlustar grannt á Ellington og ódýrt hafrakex í KRON, svo kemur Egill Ólafsson með Sæmund gamla Klemenzson, slekkur strax á Bach því…

Bráðabirgðabúgí

Bráðabirgðabúgí (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Hann var númer ellefu hjá bankastjóranum, stundi upp erindinu‘ í sparifötunum, nefndi nöfn fjarskyldra ættingja á Höfn. Á fasteignasölunni var bæði ys og þys, menn seldu og keyptu ýmist raðhús eða ris, valdi fékk tilbúið undir tréverk. Það vantar hurðina á baðið, á meðan kyrjar fjölskyldan…

Einbjörn

Einbjörn (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Einbjörn hangir niðri‘ á Hlemmi, reykir Salem, sýpur á volgri Kók, hann fær sér sæti á bak við glerið og horfir á. Fólkið flykkjast inn í strætó, fá sér sæti, líða hjá rétt eins og tímarit í pósti sem engir lesa en allir fá. Hann teiknar…

Nú er Einbjörn fullur

Nú er Einbjörn fullur (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Einbjörn nappaði nokkrum bláum og einum ljósbrúnum í bland, svo fór hann beina leið á Jóker og sigldi tundurspilli í strand. viðlag Nú er Einbjörn fullur, söngvinn og glaðbeittur með fulla vasa‘ af rettum en á engar eldspýtur. Einbjörn tók taxa í langþráð…

Ég býð þér upp í dans

Ég býð þér upp í dans (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Heyrðu Lína, magapína, viltu ekki dansa við mig á gólfteppinu eftir útvarpinu, komdu elskan og knúsaðu mig. Valdi kaldi með kúk í haldi, farðu‘ úr skónum og skrepptu svo fram og náðu‘ í meira Port Madeira, nú skal verða æðislegt djamm.…

Ég á að erfa landið

Ég á að erfa landið (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Ég er einn af þeim sem eiga að erfa landið ef eitthvað verður eftir handa mér og þú þarf svo seme ekki að verða hissa þó ekkert verði heldur handa þér. Eða ertu ánægður með það? Eða ertu ánægður með það? Þjóðfélagið…

Lína Dröfn

Lína Dröfn (Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson) Við ólumst upp við skark og sköll í sama húsi og hún Lína Dröfn, drógum fisk úr söltum sjó en Lína seldi bændum Bítlaskó samkvæmt kaupfélagsins skikk. Og til að drepa tímann svaraði hún í símann á stöðinni eftir mat. Þeir mændu á hana og…

Salt

Salt (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Límdu mig við þennan bekk hér, lofaðu að hindra leið mína heim, sjáðu svart malbikið, það bráðnar, mínir fætur þeir brenna. Saman við slökkvum skær götuljósin. Nú loks ég get drepið tímann. Á herðum mér nóttin hún malar, lofar að myrkrið þreyti mínar þrár. Stráðu á mig…

Ströndin [2]

Ströndin (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Heyri heiðina kólna, finn hún leitar á mig. Yfir slétturnar á mig kallar kuldinn, komdu heim. Í hringi snýrð mér áfram til þín steina ég ber. Með tár í blindum augum kyssi ég þig. Ég kem aldrei aftur, en höldum áfram saman nú. Höldum áfram saman nú.…

Blóðberg

Blóðberg (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Villi þér sýn, ég klæði mig úr kjólnum á meðan sólin gyllir hrygginn minn kem ég við fossa. Kyngdu öllum kristöllunum sem ég fæddi fyrir þig, ekki skekkja skarpar snertingar nú þig úr beina. Það heyrist heitt þungt hljóð. Drekk úr þér blóð og kyrja orð til…

Til mín

Til mín (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Lá lá ólíkt þér, yfir líkama minn þú syndir, lágt lágt við læðumst um en hugurinn minn hann segir, við komumst ekki hátt hátt ef við flækjumst inn undir skinni en ég vil gæta og passa þig þó að endirinn sé eftir andartak. Skýr og skorinort…

Þau svæfa

Þau svæfa (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Þær dynja hátt, ungar drunur, þær dynja hátt. Þeir svæfa þær fljót, þeir sem höfin eiga. Ég skríð í land úr syfjuðum sjónum, ég kveiki bál sem vekur upp heima. [af plötunni Mammút – Komdu til mín svarta systir]

Ró (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Róðu með mig út á haf því jörðin svíður. Dreymdu mig í kaf og búum þar, við verðum þar. Ró, ró, ró með mig út og færðu mér þinn fjólublæ. Sæ, sæ, sæ sæktu ró og fuglinn hló, við drukkum sjó og burt hann fló. Róðu mér…

Glæður

Glæður (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Góðu söltin mín sulla ég á þitt andlit, strýk af enni glóð, á þitt óða blóð. O-o o-o færðu mér þinn andardrátt o-o o-o herra, gef mér hefndarmátt. Óða glóðin sver að smita hitann, hún brennir á mig stað, stað sem vorum við. O-o o-o færðu mér…

Tungan

Tungan (Lag / texti: Mammút / Katrína Mogensen) Passaðu glerunginn minn, hann flagnar brátt af. Bleyttu upp í tungunni minni, áður en hún þornar. Því ég hef sungið of lengi án þess að segja að hún hefur umvafið sig inn í mig og ég finn ekkert annað. Og ég finn ekkert annað.   [af plötunni…

Föstudagsmessa

Föstudagsmessa (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Hey Diablo, spilar á píanó. Sálarlausar tónar sverta himininn. Hey Amigo, föstudagsmessa. Dansflórinn blotnar við dynjandi takt. Fimm í fötu, glerkaldi snákar. Sólin sest niður í síðasta sinn. Gólfið sígur, tónlistin sýgur. Við erum á hnjánum, ég strýk þér um kinn. Stígandi sæla, sjóðheitir hælar. Ég hringi bjöllu…

Vakúmpakkað líf

Vakúmpakkað líf (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Kjúklingabringa vakúmpökkuð snyrtilega ræræræræ hver vill borða hræ. Þau myrtu þig til að seðja mig. Leifarnar af drápinu í kæliborðinu. Er nauðsynlegt að éta þau. Ólst upp í fjósinu, kynntist aldrei dagsljósinu. Vakúmpakkað líf sama hvert ég sný. [af plötunni Prins Póló – Sorrí]

Hamstra sjarma

Hamstra sjarma (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Kramda hjarta ég get ekki látið undir höfuð leggjast að hringja og kvarta. Kramda hjarta finnst þér smart að vaxa barta eða er þér alveg sama eins og karlarnir í Ghana. Kramda hjarta fegurðarblettur eða varta. Hver veit hvað verður heitt klukkan korter yfir átta. Kramda hjarta…

Ég kem með kremið

Ég kem með kremið (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Hjónabandssæla í ofninum og Haukur á fóninum og allt í orden. Það er að hitna í kolunum og kvikna í kofanum alveg eins og í den. Hetjurnar blikka á skjánum og ég skríð undir teppi til að hafa það næs. Mér snögghitnar á tánum, ég…

Finn á mér

Finn á mér (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Ég hætti ekki að gráta þó allt sé orðið bjart. Hjarta mitt er svart því það er svo margt sem ég þori ekki að segja þér því ég er svo viss um að þú farir frá mér og finnir annan mann. Svo ég loka þetta inni…

Tipp topp

Tipp topp (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Seint um kvöld ég ranka við mér úr rotinu. Það er enginn heima, ég er aleinn í kotinu. Má ég fá mér púðursykur og rjóma? Ekki fella dóma, ekki kalla mig róna. Sé glitta í skottið á þér niðri á Hlölla. Hvað ertu að gera? Ertu að…

Landspítalinn

Landspítalinn (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Ég hitti mann uppi á Landspítala, hann stoppaði mig og við fórum að tala. Hann þekkti pabba fyrir langa löngu en hafði upp á síðkastið staðið í ströngu. Dóttir hans hafði flutt inn kött, serbneskan krútthaus með hala. En það sem mér fannst út í höll var þegar…

París norðursins

París norðursins (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Fögur fyrirheit á blússandi siglingu á ullarnærfötum í grenjandi rigningu. Stími heim í heiðardalinn, góður strákur og vel upp alinn. Mikið verður gott að knúsa kerlu Erlu, Erlu, Erlu góðu Erlu. Sem giftist mér því ég kunni að skaffa, sjómaður og sonur hans Haffa. Hlakka svo til…

Bragðarefir

Bragðarefir (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Hvað ertu að bauka? Setja niður lauka, gera klárt fyrir vorið, skella sér í slorið. Mikið hlakka ég til, það hlakkar í mér. Krakkarnir saman að gera eitthvað gaman. Við negrarnir, hegrarnir, frændurnir. Diffrun og tegrarnir engar helvítis megranir. Við erum óþokkar löðrandi af kynþokka. Við erum melirnir…

Kosmós

Kosmós (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Þú eyjapeyja eyja snauða dauðateygja þú spekihripleki fleki á Drekasvæðisreki þú Hemma-Gunn stemmning og menningarhremming sem sullar í ballarhafi full í ullarlafi. Grímsstaðnaða sker þú hrunda grund siðblinda stund þú framlága lágkúra óleysingjans hálssnúra herm þú mér: sem nöguð, buguð, sliguð, sjálfafsöguð þjóð. Má ég fá smá kosmós…

Lúxuslíf

Lúxuslíf (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Hraunbiti bráðnandi í sólinni. Leisergeisli í hjartastað á sálinni. Ég hef beðið eftir þér frá því í nóvember. Það er margt svo kræsilegt sem ég hef að bjóða þér. Lúxuslíf, æji plís réttu mér hníf. Ég hef verið meira en fús til að drekka þennan djús. En nú…

Fallegi smiðurinn

Fallegi smiðurinn (Lag / texti: Svavar Pétur Eysteinsson) Hér erum við 2000 árum síðar, komin saman til að drekka límonaði, dilla búka, hrista hönd og læri, nú er tækifærið að hlaupa á snærið. Höllum okkur aftur á smartasta mögulega hátt sem okkur er í lófa lagið. Þetta er lagið sem við höfum beðið eftir, þetta…

Ræfilskvæði

Ræfilskvæði (Lag / texti: Magnús Eiríksson / Steinn Steinarr) Ég er réttur og sléttur ræfill, já ræfill sem ekkert kann. Ég hélt þó hér forðum, að guð og gæfan myndu gera úr mér afbragðs mann. Ef til vill framsóknarfrömuð því fátt er nú göfugra en það. Og ef til vill syngjandi sjálfstæðishetju með saltfisk í…

Álfarnir

Álfarnir (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Einu sinni villtist ég í þokunni í heiðinni. Huldufólk, huldufólk hitti ég á leiðinni. Ég fór um þeirra byggð, og við þá tók ég tryggð. Álfana, álfana, álfana á heiðinni. Dönsuðu bláklæddar meyjarnar í þokunni. Ég var svo glaður að ég glataði glórunni. Gekk inn í gráan stein, ginnti…

Gallar

Gallar (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Það þýðir ekki að reyna að leyna þeim göllum sem þú gengur með. Því frekar en að þegja þá skaltu því segja frá þeim til að kæta geð. Því náunginn gleðst yfir fáu eins og göllum þínum. Í huganum gerir hann samanburð á þeim og sínum. Reyndu ekki að…

Ferjumaðurinn

Ferjumaðurinn (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Við stöndum saman, ég og gamall maður. Glampar á steina, hann gengur um í gúmmískóm. Dálítið skrýtinn, fær sér einn lítinn. Ofan um fjöru við færum lítinn trillubát. Og hann flytur mig að ströndu hinum megin. Þessi feyskni ferjumaður vísar veginn. Hvert skal heitið ferð? Hann svarar engu. En…

Guðsblús

Guðsblús (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Þú veist að djúpt í þínu hjarta er ennþá einn örlítill guð. Og þú veist að hann er af því bjarta, ef þú syndgar þá heyrirðu suð. Þá samviska þín er að syngja við sofandi innri mann óð. Við guð minn nú glösum skal klingja, og kveða hans ljúfustu…

Í fjörunni

Í fjörunni (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Geng ég um í fjörunni við þungan sjávarnið. Þar sem angan er af tjörunni og bátar liggja á hlið. Öldur hafsins falla að ströndu ótt. Hugur minn til flugs sig hefur skjótt Fjarlægt tif í trilluvél, tindrar sól á sæ. Brotnar undan færi skel í blíðum sunnanblæ. Bylgjur…

Graði Rauður

Graði Rauður (Lag / texti: erlent lag / Magnús Eiríksson) Sextán vetra gamall var ég sendur í sveit, sumarið var gott og sólin heit. Það vantaði frækinn hestamann til að hugsa um stóðið, og ég var hann. Mér var kennt að ríða og hugsa um stóð, og mér var kennt að rekja hestaslóð. Ég þekkti…

Lilla Jóns

Lilla Jóns (Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson) Það segja margir að ég hafi verið hafi verið heppinn að ná í Lillu Jóns og satt er það að engin engin er líkt því eins kát og Lilla Jóns. Ég veit aldrei hvert hún fer eða hjá hverjum hún er mér til tjóns, hún…